Ég er ömulegasti innpakkari í heimi!!!! var að pakka inn (og var næstum búin að tala af mér) pakka áðan....... mjúkum pakka........ þoli ekki mjúka pakka. Allt í lagi að fá þá en ÖMURLEGT að pakka þeim inn......... held svei mér þá að þetta hafi verið ljótasti pakki í heim....... en það er bara af því að það er löngu búið að rífa upp alla hina ljótu pakkana sem ég hef pakkað inn :) Vona samt að manneskjan sem fékk hann verði ánægð með innihaldið.... en veit það ekki fyrr en á jólunum :)
Samt ógeðslega ánægð með eitt í pakkanum.... bjó það alveg til sjálf og tók mig nokkra klukktíma að gera..... en æ það er svo gott að fá smá svona persónulegt í jólagjöf...... allir að gefa mér persónulegt í jólagjöf......... bara email eða e-ð :) samt ekki svona "ruslpóst" hehe :)
Ég er alveg að fara heim (og get varla beðið)........... bara nokkrir klukkutímar..... en fyrst próf :Þ ble ble ble... hvað er eiginlega að mér.... alveg fokkuð í hausnum :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli