miðvikudagur, desember 25

Gleðileg Jól



Kominn Jóladagur!!
Klukkan er 3 og ég nýkomin á lappir....lufsast um á náttfötunum.
Komnir einhverjir gestir en mér er alveg sama...nenni ekki úr náttfötunum.
Gærdagurinn var alveg yndislegur..... eftir jólamatinn lagðist ég í sófann og sofnaði var svo vakin með látum og ekkert tilbúin fyrir pakkaopnanir.... reyndi árangurslaust að díla við litla bróður um að hann skyldi opna pakkana mína en ekkert gekk.
Ekkert smá ánægð með pakkana... meira ánægð samt að vera með fjölskyldunni... hefði verið allt í lagi þó ég hefði enga pakka fengið.
Fékk samt fullt af nauðsynavörum!! Svo sem ristavél og blandara svo e-ð sé nefnt. Fékk líka helling af jólakortum með myndum í.... það vakti mikla gleði hjá mér.....
Eftir pakkaopnanir og spjall fór ég með jólabókina sem ég tók á bókasafninu niður í rúm og sofnaði yfir HTML skipunum...ég er NÖRD
Rumskaði rétt eftir miðnætti... var búin að fá sms frá vini mínum um hvort hann mætti hringja....of korrs mæ hors...alltaf gamana að heyra í vinum sínum á jólunum :)
Svo hringdi vinur minn og þakkaði mér fyrir gjöfina :) Sagði að þetta hefði verið besta gjöfin.. ég flissaði smá en var samt alveg rosalega glöð í hjartanu mínu. Ég bjó hana nefninlega til sjálf og lagði hjarta mitt í hana :) Ég spjallaði heeeiiiilllengi við vin minn í símann og var auðvitað glaðvakandi þegar samtalinu lauk... kláraði að lesa HTML bókina og las svo aðra, ekki eins fræðandi bók.... kláraði hana... píndi mig til að fara að sofa klukkan 7 í morgun.......... Svona eru jólin

Engin ummæli: