sunnudagur, desember 29

Jæja er komin tími til að opna sig...???
Hehehehehe NEI ætla alveg að sleppa því :) Betra svoleiðis!!!
Annars var rosalega gaman á balli.... eyddi held ég minnstum tíma á dansgólfinu.
Byrjuðum í bekkjarpartý hjá Njalla... spiluðum Party og co.
Endaði með að vera stelpur á móti strákum.... stelpurnar unnu AUÐVITAÐ, reyndar er það sögulegt.... varla gerst áður.
En það er auðvitað bara af því að við leyfðum þeim ekki að svindla í þetta skiptið... og hana nú (sagði hænan og lagðist á bakið) !!!
Svo var haldið á ball...sumir orðnir meira slompaðir en aðrir... mér sýndist það allavega. Hitti fullt af skemmtilegu fólki, þar á meðal hana litlu frænku mína, Helgu Luciu. Sat og spjallaði heillengi við hana um allt og ekkert....aðalega ekkert.... gamla kellingin alltaf að miðla af einhverju skemmtilegu (vona ég)
Staulaðist í partý til hennar Unu en gleymdi alveg að fara inn heldur kældi ég flotta rassinn minn á frystikistunni á ganginum ásamt skemmtilegu fólki, þangað til löggan kom... þá kom ég mér inn.... í einhverjum asnaskap skellti ég í mig landa og þá var það búið...
Kom mér heim um 7 leytið... fékk stjörnu fyrir góða hegðun en....

Daginn eftir tók þynnka djöfulsins við.... Dísa hafði gaman af því þegar ég missti mig í viðbjóði þynnkusagna í gær en ég held að ég deili þeim ekkert frekar hehe.
Einhverjir rugludallar fóru á fyllerí... þvílíkt rugl mar... hefði örugglega farið út ef heilsan hefði leyft!!

Laugardagurinn frekar andlaus... líkamleg þynnka og allt það... engin nenna... bætti allverulega úr sjónvarpsglápsleysi undanfarna vikna síðustu 2 nætur... var búin að gleyma hvað Law & Order eru góðir þættir... jú skrapp til Unu í gærkvöldi og horfði á Temptation Island frá því á annan í jólum... ég horfi á Temptation!!! Lækka efalaust í áliti hjá sumum en það verður bara að hafa það..... er ekki fyrir öllu að maður sé nóg fyrir sjálfan sig :)

Ég ætla mér ekki í forsetaframboð 2004 þrátt fyrir stuðning Helgu en sá tími kemur kannski seinna að enn á ný verður flaggað á afmælisdaginn minn :) Já ég er nefninlega Hrútur og á afmæli 15.apríl rétt eins og frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti. Eins og það skipti einhverju máli... vildi bara deila þessu :)

En hvað er málið með þennan vesæla MR-ing sem reynir við okkur frænkurnar á víxl??? Iss ég er alltof gömul fyrir hann.... en hverjum er ekki sama...aldur er afstæður og allt það....svo er ég líka frátekin :) Nei ekki á föstu sko... ekki minn stíll :)

Jæja allavega er ég farin að bulla einhverja vitleysu, farin að tala í hring og man ekkert hvað ég skrifaði hér fyrir ofan og þó það tæki andartak að komast að því þá ætla ég að láta mér standa á sama...
Sleppti djammi í gærkvöldi... ekkert nýtt, þetta er farin að vera frekar reglan en undantekningin.... ætlaði nefninlega í útivistarferð með familíunni í dag... vaknaði í morgun... lá enn á koddanum full af tilhlökkunn... hugsaði með mér... hvað með það þó hægri ristin á mér sé orðin skuggalega svört og vont að stíga í löppina.... ég fer samt... það er sko engan aumingjaskap að finna á þessum bæ.... settist upp í rúminu þá vissi ég hvar ég yrði allan daginn... í rúminu.... ég er kannski kærulaus á köflum og oft óttalegur bjáni þá storka ég ekki örlögunum að óþörfu..... varð nefninlega svo rosalega veik í haust að ég hætti ekki á að verða þannig aftur.... ég er semsagt búin að liggja undir sæng sárþjáð í allan dag og til að bæta gráu ofan á svart er ekki óhætt að vera í tölvunni lengur þar sem litli bróðir er lagstur hér í rúmið og engist af kvölum greyjið.... komin með ælupestina sem hefur herjað á bæjarbúa yfir hátíðarnar.... já nei ég ætla ekki að æla yndislega góða humarréttinum sem mamma var með í matinn... það er bara ekki að ræða það... ekki sjéns.... ég er farin.... þotin.... bless bless
kveðja Lea

Engin ummæli: