laugardagur, desember 14

Jæja jæja !!!!!!
Fór loksins að sofa klukkan 4 í nótt og var þá búin að vaka í 42klst. Ég er rosaleg... lagði mig í nákvæmlega 17 mínútur meðan mamma var að elda:) Meira var það ekki :)

Búin að vera að gera mikið undanfarið :) Fara í próf, fara í flugvél. Ég leit út um gluggann þegar við vorum að svífa yfir Hornafirðinum.... sá húsið mitt og svona :) Var svo rosalega rosalega glöð :) Svo lentum við og ég sá pabba bíða eftir mér... reyndi nú e-ð að veifa honum en hann var ekkert að taka eftir mér.... svo þegar ég hljóp út og faðmaði hann þá klökknaði ég smá :)
Svo fórum við gamli að ná í múttu í vinnuna og við mamma fórum að taka til í geymslunni...... ekki lítið sem það var fyndið :) Fann nefninlega kassa með eldgömlu dóti sem ég á........ frá því ég var sko 12 eða 13 ára...... ég var að lesa upp fyrir mömmu einhver bréf og vi emjuðum úr hlátri......... Kibba loves..... bla og ble hahahahahahaha

Í gærkvöldi fór ég svo til Unu..... langt síðan ég hef farið í djammgallann, sett upp á mig andlitið og labbað svo í partý.... sem hefði verið óþarfi því við fórum svo í annað partý sem er í húsinu við hliðina á mér..... iff piff.... láta mann labba... ég meina í alvöru!!!!! :Þ
En við sátum og spjölluðum....fram á nótt en þá var nú komin tími til að fara á ball..... fór fyrst á Horið og þá hleypur í fangið á mér engin annar en hann Jónas ofurkrútt..... auðvitað voru "blogg" mál rædd þar og við erum sammála um hver uppáhalds bloggarinn okkar er. Fyrir utan hvort annað auðvitað :) Þann heiður fékk hún frænka mín.... alveg frábær penni stelpan :) Allir alveg uppteknir af þessum bloggum... Sædís og Jóna Benný skutluðu okkur nefninlega á horið og ég og Jóna töluðum um blogg allan tímann..... Nördar!!!!

Engin ummæli: