mánudagur, desember 16

Jæja........ ég er svo glöð í dag :) Mikil umræða á MSN í nótt :) En fór líka að sofa með alveg þanda bringuna af stolti :) Ég er svo stolt af því að vera ég :) Jaaaaaaáááá ef þið bara vissuð hvað ég hef upplifað á þessum 24 árum mínum.... og er hér enn :) Ég er allaveg stolt.... meina til hvers að leggjast í eitthvað volæði??? Guð leggur ekki meira á þig en þú getur borið og þetta er allt hluti af einhverju stærra og æðra :) Þegar ég verð gömul kelling (svona fertug hahahah) þá allt í einu kveikji ég á perunni.... já þetta hefði ég nú ekki getað gert nema fyrir allt hitt :) Þannig er það nú bara :Þ

Er að tala við Halldóru frænku á MSN, hún líka komin með blogg ..... já það eru líka tölvunördar að vinna í WC hahahahaha Aliir orðnir tölvunördar í dag :) Held það bara :) En það er bar cool :)

En hei hvernig væri að skrifa í Gestabókina mína, nenni ekkert að linka á hana. Hún er þarna upp og muna bara SMELLA Á HÆGRI TAKKANN þegar þið eruð búin.... fólk á í einhverjum erfiðleikum með að lesa á takkana :) fleh

*Dísuhornið*
Dísa situr þessa dagana sveitt yfir hópverkefni í HR ekkert að spauga með það... hef alveg fengið kvartanir... kommon Dísa, hvernig væri að fara í sturtu. Allavega annan hvern dag :) En annarrs er hún svaka dugleg og er alveg með þetta.... gefur sér nú samt alltaf tíma til að vera yndislega.... en svoleiðis er hún Dísa bara :) Hún ætlar að bruna á fagra Hornafjörðinn á fimmtudag vonandi eða föstudag þannig að Hornfirðingar fá að berja fljóðið (augum sko) innan tíða :) Heppnir Hornfirðingar :)

Engin ummæli: