miðvikudagur, janúar 29

Vá Janúar er bara að verða búinn!!!
Fyndið hvað tilveran getur breyst mikið á einum mánuði!!!!

Annars er ég í einhverri mega fýlu þessa dagana..... æ ég veit ekki alveg hvað málið er.... kannski e-ð skammdegisþunglyndi.
Ég varð veik og lá með nær 40 stiga hita í rúminu dögum saman og það var ógeðslega leiðinlegt.... en svona þegar ég tók að hressast aðeins og gat haldið augunum opnum og smá einbeitningu í meira en 10 mínútur þá sá ungur "herramaður" til þess að mér leiddist ekki jafnt með sms sendingum og símhringingum... hí hí það er alltaf gaman. :)
En það var nú ekki mikið úr því samt held ég..... fínn gæji en sumir hlutir virka bara ekki if u know what I mean!!

En í dag á hann Elmo dúlla, kroppur og tölvugúrú með meiru, afmæli :) Ég auðvitað varð að vera fyrst til að óska honum til hamingju, vakti hann meira að segja... e-ð mikið í gangi þegar hann er fari að sofa fyrir miðnætti!?!?
En nú ætla ég að fara að gera brauðtertu fyrir strákinn og Birgitta ætlar að reiða fram Betty Croker köku.... fitubolluveisla í kvöld :)

Engin ummæli: