Djammið
Kíktum á djammið á föstudag.... gat ekki séð að andi Valentínusar eða ástarinnar væri í loftinu.
Eftir óvenju stutta tískusýningu á Grensásveginum var skellt sér niðrá Astró þar sem við borguðum 500kall inn (there's a first time for everything) Þar tylltum við okkur niður því ekki var voðalega margt um manninn og stelpurnar keyptu sér Magic og ég KEYPTI mér bjór (eins og ég sagði...first time for everything.. nei djók) Við sátum nú ekki lengi einar dömurnar því auðvitað flykktust að okkur einhverjir karlmenn.... held að í þetta skiptið hafi þetta verið meira "strákar" en þeir voru nú helvíti hressir...
Prinsessan missti sig þegar C&C Music factory fór að glymja í eyrunum á henni og hlýddi skipuninni "Everybody dance now"... rifjaði upp nett spor af "opnum húsum" í gagganum og það ekki á dansgólfinu ;) Nett á því :)
Kvöldið var heldur tíðindalítið en ég hitti þó nokkra misskemmtilega karaktera.... heillengi sat ég og ræddi yfirnáttúrulega hluti og fyrri líf.... einnig unglingabækur sem eru náttúrlega yfirnáttúruleg fyrirbæri útaf fyrir sig... allavega fyrirbæri :) Fyrsti maðurinn sem ég hitti var gamalt fling.... ja næstum kærasti og var hann að reyna að heilla einhverja dömu (sem ég reyndar sá aldrei) ég sló fram þeirri staðhæfingu að ég gæti nú fengið hann hvenær sem ég vildi... sama hve daman á armi hans væri glæsileg.... hann horfði í augun á mér í smá stund og varð svo að játa sig sigraðan... ég hef enn tök á þeim bæ :)
En mínar áætlanir voru aðrar og ég skellti mér á dansgólfið með dömunum þar sem ég fann einn skemmtilegan furðufugl..... hárið á honum var afskaplega furðulegt og gerðum við Birgitta stólpagrín af því (sem hann fattaði ekki) en gleraugun voru...... já þau voru hreinasta hörmung...sem gerði það að verkum að ég bara VARÐ að fá þau lánuð og taka smá hring um staðinn þar sem ég vakti mikla lukku, búin að girða jakkann ofan í buxurnar og setja upp alveg hræðilegan svip.... margir hverjir þekktu mig ekki (af þeim sem ættu að gera það) :) Brjóstin á mér vöktu líka mikla lukku hjá einhverjum og kynnti ég þau með nafni.... notaði alveg vitlaust nöfn því annar þekkti greinilega til á einkamál... en ég held að hann hafi verið bara ánægður að sjá að það eru líka skvísur eins og ég skráðar inn á þann merkilega vef.... þó svo ég svari aldrei neinum :) En auðvitað komst hann fljótt að því að hann ætti engan sjéns í skvísuna enda ekki sá gállinn á stúlkunni. Hjartað ekki á boðstólnum þessa dagana :)... Aftur hitt ég Badda... og hann er alltaf jafn.... já... the good old days :) Hitti líka einhvern gæja sem ég kannaðist hræðilega við og hann við mig en við tengdum ekkert.... demmit!!!
Eftir Astró töltum við áleiðis á Glaumbar en fyrir einhvern fíflaskap ákváðum við að taka hring á Dubliners. Þar var Bjarni vinur minn Tryggvason að spila og Halldóra á dansgólfinu í góðum fíling.... stoppuðum stutt og skunduðum á Glaumbar. Hitti Hjalta þar aftur og Þórir fyrrverandi bekkjarbróður minn. Það var nú eina fólkið sem e-ð var varið í þarna inni svo við fórum aftur út og héldum heim á leið... Þannig var nú djammið....
Nú er komið laugardagskvöld og ég sit á silkináttkjólnum fyrir framan tölvuna og ætla að henda mér í rúmið... e-ð slöpp (EKKI ÞUNN)
Horfði á Júrovision... eða síðustu 4 lögin eða e-ð þannig.... Ætla því ekki að dæma hvort Birgitta sé verðurgur fulltrúi (eða lagið öllu heldur, Birgitta er ágæt) í aðalkeppnina sem er haldin.... eeeee ... einhversstaðar :)
Sá seinna lagið með Hreim... fyndið hvað lagið hljómaði allt öðruvísi þegar hann söng það í seinna skiptið.... fyrir ykkur sem horfðu ekki og eigið ykkur semsagt áhugaverðara líf en ég, þá fór allt að hiksta í miðju lagi og djókað með að Hreimur væri að "mæma" sem hann sannaði svo í seinni umferðinni að hann var sannarlega ekki að gera... Hreimur fær tilnefningu fyrir bestu samfarastunur á sviði....
Videóspólan komin í tækið og ég farin í bælið..... Góða nótt
Engin ummæli:
Skrifa ummæli