fimmtudagur, febrúar 13

Ég var vakin um miðja nótt.... reyndar hef ég undanfarið verið vakandi klukkan hálf þrjú en í nótt svar ég værum svefni þegar heimasíminn hringdi látlaust.... ég vaknaði reyndar ekki við hann heldur var þetta bilun í gsm símanum sem ég var að laga (mig var að dreyma sko) ég opna augun og tek gemsann úr hleðslu því annars myndi koma ójafnvægi á alheiminn... (gaman að vera í mínum draumaheimi) Svo byrjar gemsinn að hringja og ég mitt á milli heima svara í hann..... þar var á ferð sjómaðurinn vinur minn sem ætlaði nú að hringja 2 tímum fyrr en lenti á einhverju símavændi (jamm ég er búin að finna KARLMANN sem er meiri símahóra en ég og með símahóra meina ég að tali meira í síma en ég... ekkert dónó sko) ég smajttaði e-ð í símann man varla hvað það var en í lokin kom það upp að peningar skipt máli... hann heldur að þeir skipti mig öllu máli (sem sýnir auðvitað bara hversu lítið hann þekkjir mig) en ég get nú sagt ykkur það að ég leyfði Schumacer (sem var kærastinn minn) ekki einu sinni að kaupa handa mér pylsu og pepsi á McDonalds þó hann eigi margar margar millur... og hana nú (sagði hænan og lagðist á bakið)

Fór í morgun og stimplaði mig atvinnulausa í fyrsta skipti.... held að ég hafi gert þetta 3 áður yfir ævina.... ekki alveg minn stíll.

Engin ummæli: