Lífið er yndislegt
Now that I've tried to talk to you and make you understand.
All you have to do is close your eyes and just reach out your hand.
And touch me hold me close don't ever let me go......
Já það er spurning..... ætli það gerist einhvertíma????
Ég fór að hitta pabba minn í kvöld.... það var svo næs.... spjalla við hann og Sylvíu mágkonu og aðeins stóra bróður.
Hann var á fullu að læra undir sveinspróf sem er um næstu helgi, Óskar bróðir sko. Honum á eftir að ganga vel ég veit það alveg.... hann er svo klár strákurinn :) Ég gladdi hann nú alveg samt með að koma með 5 Friends þætti.... þá var minn kátur hehe :)
En það að faðma pabba aðeins og bara vera nálægt honum fékk mér til að líða mun betur. Sumir geta þetta... sérstaklega mömmur og pabbar... og svona allra bestu vinir :)
Núna er komið ógeðslegt veður hérna í höfuðborginni, trén í garðinum hjá mér eru að takast á loft og ég er bara hálf hrædd... ógeðsleg læti e-ð... en ég sit hérna í myrkrinu og hlusta á tónlistina mína og mér líður bara vel (nema í rófubeininu... gamli eldhússtóllinn hennar ömmu er ekki að blíva við tölvuna.)
Var að horfa á 14. þáttinn af Friends áðan... hann var ágætur...samt ekki eins fyndinn og 12. og 13. en kannski er það bara ég.... múdið skiptir rosalegu máli hehe... já og auðvita félagsskapurinn *blikk blikk*
En ég er að leka niður úr þreytu og ætla að sofa í hausinn á mér..... and to all a good night
Engin ummæli:
Skrifa ummæli