Jæja Bolludagurinn liðinn og ég át yfir mig... úff... tróð örugglega 4 bollum í mig... ekki í einu samt.
Sprengidagur kominn og engaar baunir fyrir mig *snökt* Ef einhver vill bjóða mér þá er bara að senda mér meil... já síminn minn er nefninlega e-ð bilaður hmmm.... það er ekkert samband á honum... ég er búin að hoppa og skoppa og gera alls konar kúnstir með hann en ekkert virðist virka... Kannski lagast hann bara að sjálfu sér...
En í dag er´geggjað veður annan daginn í röð... sól og blíða.. ég er að fara með stólana mína út í garð (nei ég er ekki að fara í sólbað) og ætla að viðra sængina mína á þeim... og kannski bara púðana og allt líka... bara vorhreingerning í gangi...
Annars er ég að fá gest á fimmtudaginn því hún Una mín ætlar að koma og gista hjá mér um helgina... Gaman gaman... við ætlum á Austfirðingaball á Players á föstudaginn og hvet ég alla til að mæta. Það verður brjálað stuð :) Jæja farin út í garð :)
Ég vil líka óska Óskari bróður til hamingju með afmælið á sunnudaginn... lucky numer 27
og Dísa skvís átti afmæli í gær, mánudag... 26 ára... vona að þið hafið átt yndislegan afmælisdag :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli