Tíminn flýgur
Já hann æðir áfram gjörsamlega óstöðvandi. Bráðum nálgast enn einn afmælisdagurinn
St. Patrick's, þjóðhátíðardagur Íra, var á mánudaginn þ.e. 17.mars. Fyrir tilviljun var ég einmitt að skoða myndir sem ég á í albúmi hér uppi í hillu og rakst þar á myndir af mér á þessum sama degi nema þá var ég stödd í Dublin. Þá skall það á.... Það eru liðin 3 ár síðan.. heil 3 ár!. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og margir draumar dáið en þegar ég horfði á þessar myndir vissi ég að eitt hafði ekki breyst... bara verið falin og það var sú tilfinning sem ég upplifði á þessum tíma.
Afhverju erum við alltaf að "taka ákvarðanir" jafnvel um hluti sem eru ekki í okkar höndum. Stundum er bara ágætt að fljóta með straumnum og sjá hvert hann leiðir mann. Nú er komin tími til að kveðja ljúfsárar minningar og halda heil á vit ævintýranna.
Tíminn fær ekki að ræna meiru frá mér.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli