miðvikudagur, apríl 30

HáskaPáskar

Kannski ég útlisti svona aðeins því sem ég gerði um páskana :)
Eins og áður sagði þá fór ég á ball með SKÍMÓ á miðvikudeginu en hypjaði mig heldur snemma heim...
Á fimmtudeginum þá leigði ég videó með Rabbalingnum mínum og litlu prinsessunni :) Fór bara úr náttfötunum til að hlaupa út á leigu :)
Á föstudaginn var Birgitta komin og við rúntuðum um Akureyri á jafnaðarkaupi og skoðuðum karlmenn :) Hittum félaga okkar sem enduðu svo með að vera "bestu vinir" okkar alla helgina. Við skelltum okkur á ball með Sálinni að sjálfsögðu og það var engin spurning hver var myndarlegasti karlmaðurinn á svæðinu... og ég fylgdi honum heim... en ekki fyrr en eftir langt bull í bænum eftir ballið... bara gaman af því, svona að mestu leyti... Ein vinkonan eitthvað nett biluð á því og skildi eftir djúpt hælfar í lærinu á mér um leið og hún yfirgaf okkur.... en málið jafnaði sig líkt og marbletturinn.....
Laugardagurinn var svo sallarólegur.... sváfum til hálffimm... en það var nú farið ansi seint að sofa..... svo verður maður alltaf þreyttur eftir leikfimi ;)
En ég og Birgitta skelltum okkur á ball með Pöpunum... auðvitað fengum við frítt inn... ekki annað hægt en að bjóða dömunni á ball þó hvorki hafi ég verið í rauðu né kjól :)
En þarna var hafin mikill vinskapur fjórmenninga og vorum við pöruð saman og engin leið fyrir nokkurn mann að reyna að "hözzla" því þá var gripið inn í um leið... það var svo sem allt í lagi... ekkert kjöt í sjónmáli hehe :)
Á sunnudaginn var bökuð feit Betty og meira að segja 2 :) Rúntað um fjörðinn og fólki gefið smakk. Hjá Rósu mömmu Birgittu var svo misst sig aðeins með myndavélina eins og oft áður og kannski ég birti eitthvað af því síðar :) Um kvöldið var haldið í Sjallann og fjórmenningarnir límdir saman á rasskinnunum enda bara gaman af því :) Það var tekið nett á því á dansgólfinu og svo haldið upp í sumarbústað þar sem gleðin hélt áfram :) skriðið var undir sæng undir morgun en svefnfriðnum var raskað duglega enda ekki allir jafnt stemmdir fyrir svefni :)
Óhætt að segja að hausar hafi verið myglaðir þegar haldið var aftur til Reykjavíkur og hafa skal það í huga að ekki er mikið rými aftur í bjöllu til að sofa... ég var kannski sú eina sem náði kríu en vaknaði við pizzuheimsendingu (það er nefninlega að gerast á miðri Holtavörðuheiðinni) og eftir það var enga hvíld að fá :)
Semsagt.... ROSALEGIR Páskar að baki og komin pása hehe :)

Skellti mér samt á MOS á Broadway... vantaði samt alvarlega Unu í miðju Heaven remixi hehehe :)
Ég skemmti mér konunglega en B kannski ekki alveg eins vel... Hún var held ég bara ekki að fíla outfittið.. ekki vön að vera svona fín hehehe :)

Svo fór ég í atvinnuviðtal í morgun... fæ að vita örugglega í dag hvort ég fái eða ekki... Er bjartsýn en vil ekki jinxa það :)
Jæja pæja (ég sko) farin að læra :)



Engin ummæli: