Nóg um mat og þægilegheit og líka bull og rugl... allt í góðu jafnvægi...
Reyndar var síðasti dagurinn kannski aðeins of erfiður... lítið sofið, en mikið hlegið.
Á miðvikudaginn fór ég á ball með
Það var auðvitað tær snilld og ég tyllti mér bara uppi á fínu svölunum í Sjallanum og fylgdist með :)
Auðvitað tók ég netta sveiflu á gólfinu.... kíkti líka bakvið í pásunni.. gaman að hitta strákana :) Mest var þó gaman að knúsa Viktor minn :)
Labbaði næstum niður einhvern gaur á ballinu og snéri mér við til að biðjast afsökunar. Kannaðist e-ð við gaurinn og spurði hvort hann héti kannski ekki bara Gummi. Játti hann því og lét ég þá dæluna ganga um hvað konan hans væri nú skemmtilegur bloggari og hann yrði nú að skila kveðju frá mér.... hmmm Prinsessan er svoldið sækó greinilega :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli