föstudagur, apríl 25

Jæja sumarið er komið og ég hef ekki enn séð sólina. Hinsvegar er ég komin með svaka kvef... ekki svona svaka stífluð kvef.. heldur hnerra kvef... bara læti og minnst gaman :)
En sólin skein aðeins í hjarta mér í gærkveldi... ég og B skruppum nefninlega aðeins á Sólon og þar hitti ég Halldóru, Þröst og Zato manninn hennar Halldóru... Þröstur blæddi svaka kokteil á okkur frænkurnar og sæti barþjóninn var sko alveg með þetta :) Viðurkenni að það kippti aðeins í og Birgitta hló nett að minni þegar kjafta og pissublöðrurnar voru non stop hehe :)

Fór líka í Kringluna í gær og eyddi afmælisgjöfinni minni frá Sylvíu og Skara. TAKK FYRIR MIG ELSKURNAR!!! :***
Ég er svaka pía núna... stóðum meira að segja í prútti og það var bara fyndið. Það vantar svoldið prútt menninguna á klakanum :)

En nú er ég að skella mér á deit svo við heyrumst bara síðar :D cao

Engin ummæli: