Allt brjálað vegna þess að forstjóri ÚA ,heyrðist mér, er með kosningaáróður við starfsfólk sitt.
Úff hvernig ætli sé að vinna í Skinney Þinganes hf. Er ekki hlutur þar í eigu Halldórs Ásgrímssonar??? Ekki það að ég viti það... allavega átti Ásgrímur gamli gömlu Skinney og stór hluti fyrirtækisins er í eigu fjölskyldunnar... ætli Dóra hafi verið sá eini sem fékk ekki hlut í arf?? Held ekki!!
Ég man að fyrir utan gömlu Skinney (þar sem nú er saltfiskverkunin) var alltaf jólatré eins og annars staðar. Þetta jólatré hafði þó þá sérstöðu að það var engin blá pera á því.... mér fannst það því skylda mín að stela bláu perunum hjá Hafnarvoginni og fleirum trjám og setja þær á þetta tré... skipti þeim út fyrir Framsóknarlitinn :) Daginn eftir var búið að skipta um seríu og allt með litlum hvítum perum..... Ekki var hægt að hafa lit sjálfstæðisflokksins á Framsóknarfyrirtækinu hehehe Bara fyndið
Engin ummæli:
Skrifa ummæli