miðvikudagur, maí 28

Fékk fyrsta mígreniskastið í langan tíma í gær... í vinnunni af öllum stöðum. Hafði það af til miðnættis en var farin að labba asnalega án þess þó að vera farin að labba á veggi.... sem betur fer... ég yrði kannski lögð inn bara og það viljum við nú ekki :)
Svo kom ég heim og þá var húsið bara fullt af köllum sem ég þekkti ekki baun... jú reyndar þekkti ég hann Guðmund Bjarkarpabba og hann er nú alltaf nettur á því og var enn við sama heygarðshornið.... hmm þeir hótuðu að koma og banka á gluggann minn til að vekja mig í morgun... ætli þeir hafi ekki séð að sér... örugglega ekki þorað í mig því ég sagði þeim að ég yrði alveg snar ef ég fengi ekki að sofa út :)
Eftir að þeir voru farnir sátum við pabbi og mamma og kjöftuðum.... og ég afréð að spyrja þau að ýmsum "fjölskylduleyndarmálum". Spurningum sem hafa brunnið á mér ansi lengi....
Mér finnst gott að vera orðin fullorðin, ég er alltaf að kynnast nýjum og nýjum hliðum og sjónarmiðum hjá foreldrum mínum... og þá sem manneskjum en ekki foreldrum. Pabbi kom mér skemmtilega á óvart því hann var ansi opinskár um suma hluti, kallinn sem vill alltaf hafa alla góða :)

Annars er það í fréttum að ég fékk LOKSINS að vita einkunnirnar mínar í gær og ég er enn brosandi út að eyrum. Fékk reyndar bara 7,5 í einu prófinu en ég var líka orðin fárveik svo ég er sátt :) Svo fékk ég 8 9 og 10 og er alveg sátt við það :)

Jæja nú ætla ég að dröslast í sturtu og fá mér að borða. Mæting í vinnu eftir 2 tíma. Grunar að þetta verði erfiður dagur.

Engin ummæli: