Jæja þá er það klárt hvað ég ætla að gera í sumar... :)
Ég verð í sælunni á Hornafirði að vinna á hjúkrunarheimilinu....
Hringdi í Fröken Fokkalot á laugardaginn svona til að heyra í henni hljóðið... það var greinilega langt síðan við spjölluðumst því hún barasta þekkti mig ekki... þekkti ekki einu sinni hláturinn... ég náði að bulla aðeins í henni áður en hún áttaði sig á hver væri á hinum enda línunnar :) En það kom nú bara í ljós að ég þyrfti ekkert að kvíða því að deyja úr leiðindum á Skjólgarði því hún kemur bara kannski líka að vinna þar... líka Helga (s)Vala og Hildur :) Þannig að það verður bara gaman á Víkurbrautinni í sumar :)
Jæja úr varð að ég kaus Framsókn... sem var auðvitað alltaf í spilunum enda sjálfsagt í blóðinu :)
Ég sat nú ekki mikið yfir kosningasjónvarpi því ég var komin niðrí bæ rúmlega ellefu!!!
Kíkti á alveg heilan helling af stöðum... svo sem Metz, Vegamót, Prikið, Ölstofuna,Sólon, Sirkus, Nelly's og Spotlight :)
Mikið af fólki í bænum og mikið stuð... nema þá helst ég.... Var í engum gír... svona um 3 leytið lifnaði ég þó aðeins við :) Eins og vanalega þá vorum við fram yfir 6 í bænum þrátt fyrir að ég hafi ákveðið annað... svona eru bara örlögin :)
Engin bifreið til handa svo tekið var til þess ráðs að húkka sér far... með misgóðum árangri :)
Ég réðst á einhvern gaur niðrá Ingólfstorgi eða öllu heldur Hlöllann hans hehe :) Hann háði ekki mikla baráttu enda hló greyið svo svakalega :) En ekkert markvert gerðist þetta kvöldið... ja nema eitt úff... Geymum það bara... helst gleymum hehe :)
En ég hitti helling af fólki.... Didda, Adda Kalla, Hróa,Halldór Rafn,Beggu beibu,Árdísi, Helgu Rún, Kalla hennar Lóu... og fleiri og fleiri...
Sá líka Teit í Króki en náði að fela mig bakvið hárið og flýtti mér framhjá hehe :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli