Jæja kominn Eurovision dagur.... það vantar alveg sólina úti en það er allt í lagi því það er nóg af henni í hjartanu :)
Í gær var bara horft á sjónvarpið eins og ég var búin að ákveða og var ég sofnuð óvenjusnemma :) Það var bara gott :)
Æsa lenti í 5.sæti og óska ég henni til hamingju með það... ég óskaði henni 3.sæti en svona er nú lífið... mér fannst eiginlega að þessi í 2.sæti hefði mátt vera heima... það eina sem var flott við hana voru brjóstin... gæfi alveg eitthvað til að vera með þessi brjóst... hvað ætli hún hafi borgað fyrir þau??...
En ég er á því að sú fegursta hafi unnið.... 2 aðrar komu líka til greina að mínu mati... man samt ekkert hvað þær heita :)
Kollurinn minn er svoldið súr þessa dagana, hann verður það alltaf þegar ég kem aftur hingað á Höfn... veit ekki alveg hvers vegna... það er lygi... ég veit alveg afhverju... get bara ekki alveg deilt því...
Ég er búin að semja einhvern helling af rugli sem virðist ekki vera ánægt lokað í stílabókinni minni en ég veit þó að það á ekki heima hér á blogginu... eða hvað?? Er þetta ekki MITT blogg?? Er þetta ekki MINN hugarheimur....
Kannski ég setji þetta bara hér inn og þeim sem mislíka geta bara farið eitthvað annað... á meðan allavega...
Ég veit ekki alveg afhverju ég er að réttlæta mig eitthvað.... kannski bara að segja að það á ekki að taka ÖLLU bókstaflega... kannski er verið að tjá eitthvað annað sem ekki er hægt að segja. Kannski ekki... hver veit??
Skiptir reyndar afara litlu máli... ég held að það lesi hvort eð er enginn þetta blogg :)
Vó rugl færsla... Delete...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli