föstudagur, maí 2

Kosningar alveg á næsta leyti og ég veit ekki enn hvað ég á að kjósa... eða hvort ég eigi að skila bara auðu...
Fór á kosningaskrifstofu Framsóknar á Laugarveginum og bað vinsamlegast einhvern gauk um að segja mér hvað hann ætlaði að gera fyrir mig ef ég setti x við B. Ég reyndar skellti "Vinir Dóra" og "X-B 2003" barmmerki á gallajakkann og spásseraði þannig upp og niður Laugaveginn með "ríkis"poka í hendinni. Ég er ekki alveg sannfærð... á ég að setja X við Dóra frænda eins og vanalega eða á ég að skila auðu.... þetta virðast vera kostirnir....huh!!!!!

Engin ummæli: