ELLI???
Í gærkveldi var ég háttuð upp í rúm um hálfellefu. Er það eðlilegt?
Ég fór ekki á sjómannaball í gær eins og allir vinir mínir sem eru staðsettir hér á Höfn. Ég leigði mér videóspólu og keypti nammi sem ég borðaði ekki og verður því að bíða næsta laugardags. Ég var steinrotuð um eittleytið og vöknuð klukkan 10 í morgun. Ég hef ekki farið svona snemma að sofa á laugardagskvöldi síðan...... eeeee... hmmmmm...... ég bara man það ekki. Ætli ég hafi nokkurn tíma gert það. Ég hef ekki vaknað svona snemma á sunnudagsmorgni síðan 1300 fyrir Krist (nema auðvitað þegar ég hef þurft að fara að vinna). Reyndar dottaði ég aftur um hádegi og það yfir Formúlunni. Það er af sem áður var þegar ég vaknaði fyrir allar aldir til að fylgjast með og það vel. Núna get ég ekki haldið augunum opnum yfir róandi *whúmm* hljóðum.
Ég hef ekkert gert frá því ég kom hingað.... 2svar kíkt á Hóruna. Nokkru sinnum í heimsókn til Unu og á 3Diablos fundi þar sem við stelpurnar hittumst. Svo hef ég auðvitað unnið. Ég nenni bara ekki neinu. Ekki það að ég sé eitthvað löt. Löngunin er bara ekki til staðar.
Ég er orðin kærastan sem hættir að mála sig og nennir ekki að fara á djammið lengur. Er bara heima í íþróttagallanum. Eina sem mig vantar er kærastinn... býður sig einhver fram? Efast stórlega um það :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli