mánudagur, júní 2

Ég er að missa vitið.. ég er að missa vitið.. ég get mig ekki frá tækjunum slitið....

Enginn vil aðstoða mig við að finna nýtt lúkk á síðuna og ég bara get ekki tekið ákvarðanir sjálf :)

Fyndin frétt á Vísi um daginn en ég ætla barasta ekkert að vera að linka á hana. Þvílík skömm á Hornafjörð!!! En ég lá samt alveg í kasti í dag þegar ég var að lesa þetta.... hvað er eiginlega að fólki. Helga veit meira um þetta mál :)

Kalli bróðir smitaði mig af gubbupest sem hann fann á Sjómannaballi. Það er ekki gaman!!

En alltaf gaman af því þegar maður eignast vini sem maður getur blaðrað endalaust við. Una er held ég besta dæmi mitt um svoleiðis vin og getum við kjaftað út í það óendanlega. Alltaf samt um okkur sjálfar og þau "málefni" sem eru hjartanu kær :) Við þurftum að taka á það ráð í vetur að notast við símann því við hittumst svo sjaldan. Fjárhagstaðan leyfði þó ekki mikið af því. Þokkalega ætla ég að bæta upp fyrir það í sumar :)
En ég komst að því í dag að ég á annan svona vin. Ég spjallaði við hann í símann í 4 klukkutíma. Margir hljóða núna (helst mamma hehe) en þetta gerðist bara... tíminn flaug bara á braut :) Skemmti mér alveg konunlega :) Takk fyrir spjallið elskan :***

En nú er Gittan mín að fara af landi brott *snökt snökt* Ég á þokkalega eftir að sakna hennar... litla hjartað mitt.
Kannski kemur hún ekki aftur fyrr en eftir 6mánuði (vonandi samt eftir 3) En þá verður nú gaman og ég er að sjá fram á að nær allar vinkonur mínar verði í höfuðborginni næsta vetur *úff* Nema Una..... það er ekki nógu gott!!

Ég held að gestir mínir á þessari síðu hafi bæði gleymt Gestabókinni og mannasiðunum því það er jú kurteisi að kvitta fyrir komunni öðru hverju ;)

Birgitta elskan... góða ferð til Ameríku... sendi kveðju til fyrirheitna landsins :)

Engin ummæli: