sunnudagur, júní 8

Ég held að það sé óhætt að segja að þetta sé búinn að vera erfiður dagur!
Ég vaknaði hálftíma áður en ég átti að mæta í vinnu og HRIKALEGA þunn. Dröslaði mér af stað eftir að hafa hamsað tvær Ibukód því hausinn á mér var stærri en loftbelgur að mér fannst og alveg við það að springa. Held að það hafi verið reunion hjá ásláttar félagi eitthvað HEIMSINS, þannig voru kvalirnar. En ég mætti í vinnu og brosti út að eyrum og spaugaði og dansaði þó mest langaði mig að skríða upp í eitthvert rúmið og sofa bara. Svona er ég fölsk hehe :)

Samt fyndið kvöld í gær, allavega hjá mér :Þ Ömurleg hljómsveit á Víkinni og fáir en mér var alveg sama, skellti mér svo í partý og hvaðeina... ja ef partý skal kalla.
Bullaði alltof mikið í afleysingalækninum, þannig að ef ég verð veik (7,9,13) þá verð ég bara að drepast eða eitthvað því ekki fer ég upp á Heilsu. Vandast málið að ég er að vinna á hjúkrunarheimili sem er tengt Heilsugæslustöðinni með einum gangi... trallalí, verð bara að fela mig ef hann kemur. Ömurlegt þegar maður er alltof mikið að tala á fyllerí... það er bara enginn filter á manni!!
Jæja allavega þá fór ég í annað partý sem svo var ekkert... hefði átt að fara beint heim eftir fyrsta partýið og ég vissi það alveg en bara fór ekki heim... líð fyrir það í dag.
Vaktin að verða búin og allir farnir í bólið... get ekki beðið eftir að komast heim. Drekk ekki aftur fyrr en á Humarhátíð. Klárt!!
Góða nótt

Gleymdi einu... því ég var svo mikið kvikindi í gær.... átti glæsilegasta OFF allra tíma hahahah og grey gaurinn fór sneyptur í burtu eftir að hafa elt mig heim og reynt óspart að fá gistingu. Hafði í hótunum við mig... ég fengi sko engan koss þá... ég hló bara og var alveg sama.... svo hljóp kauði á eftir mér og vildi endilega kyssa mig.
Nei takk ég er tilfinningalega frátekin hahahah.... ætla ekkert að segja hvernig offið mitt var en ég hló allavega mikið og fór inn :Þ Vond stelpa ég :)
Sofið rótt :**

Engin ummæli: