laugardagur, júní 7

Jæja þá er það orðið formlegt ;-/
Ég er orðin feit!!!!! Sú blákalda staðreynd liggur fyrir að ég er orðin fitubolla.... steig á vigtina í morgun og var alls ekki ánægð með töluna sem birtist.... plús það að ég er komin með belg!!! Tek mig ekki vel út í neinu dressi því þessir bévítans fitukeppir eru bara ALLSSTAÐAR!!! Aðalega á maganum samt.... gleymum ekki hliðarspikinu :)
Góðu fréttirnar eru þær að ég er byrjuð að hreyfa mig og vonandi rennur fitan af mér næsta mánuðinn... Hún bara verður að gera það... ég ætla að líta vel út á Lobsterfestivalinu :)

Í gærkvöldi þá elduðum við Una okkur svaka góðan mat (ekki furða að ég fitni) og fengum okkur smá bjór (aha já haltu áfram) Svo kíktum við Frú Fokkalot aðeins á Kaffihornið og ég og Bryndís Ósk tókum stuttan hring á Víkinni. Svo fór ég heim og farin að kvíða deginum í dag því vinna átti að hefjast kl.8:00 að staðartíma. Ég reiknaði með að fá 5 tíma svefn en eitthvað var það nú minna því öllum (allavega mörgum) datt í hug að hringja í mig um miðja nótt... hvað er það!!! Allir að spyrja hvort ég væri að djamma... margir sem ég hafði greinilega gleymt að segja að ég væri farin austur á land :Þ

En dagurinn í dag var góður, það sem af er allavega. Mætti stundvíslega í vinnu og lék á alls oddi :)
Hvernig kvöldið verður kemur svo í ljós (andsk.. ætlaði að skella mér í ljós) Kannski ég skelli mér á ball en kannski verð ég bara heima í afslöppun... Footloose í imbanum í kvöld... kannski horfi ég á það og borða nammi og safna meira spiki (get samt lofað ykkur því að þetta hvalaspik kemur EKKI vegna nammiáts)

Birgitta snúlls (sem hefur EKKI skrifað í MÍNA gestabók hmm?? :-/ ) sendi mér mynd af dúllunum mínum