Oh what a beautiful day....
Johnny er eitthvað að kvarta yfir mánudögum í dag... Ég er sko alls ekki sammála honum... ég hef oft tekið eftir því hvað mánudagar eru oft betri en aðrir dagar
Ef maður hefur átt helgarfrí þá er ég oft úthvíld og glöð og gaman í vinnunni. Sérstaklega tók ég þó eftir þessu þegar ég var að vinna í saltfiskinum forðum daga (fyrir rúmu ári) og þar voru sko aldrei helgarfrí.... En ég var alltaf syngjandi, trallandi og oftar en ekki dansandi
Í morgun vaknaði ég fyrir allar aldir og búin að sitja í garðinum að reyta arfa í allan morgun og ekki hvað... syngjandi
Life is great, það er ekki spurning!
Allar pælingar mega fara lönd og leið í dag, sólin skín þarna einhversstaðar á bak við skýjin þó hún nái ekki að sleikja á mér andlitið
Ef einhver heldur að þarna sé komin 180° snúninur á mér.... þá hefur hann rangt fyrir sér
Þegar þar að kemur þá segji ég mína meiningu við réttan aðila og geng svo í burtu, loka þeim kaflanum og bókin búin takk fyrir
Ný og miklu skemmtilegri saga bíður þess að fá lesendur.....
Ef þú skilur ekki hvað ég á við so what... gerir það sjálfsagt enginn nema ég.
Hef ákveðið að ákveðnir aðilar mega bara fara í rassgat og vona að þeir eignist gott rassgat fyrir heimili svo þeir geta verið hamingjusamir það sem eftir er....
Ég ætla ekki að vera hamingjusöm það sem eftir er..... en samt að mestu
Eins og Siggi benti réttilega á (takk Siggi fyrir bréfið, ég hef greinilega lítið breyst á 10árum
) þá ganga sumir upp á lagið með að taka en gefa ekkert á móti í persónulegum samskiptum. Getur verið svoldið lýjandi stundum.... en þess virði
Ég hef alltaf hugsað það þannig að þó ég myndi deyja úr ástarsorg þá veit ég þó allavega að ég lifði lífinu og hlýt að hafa gert eitthvað rétt því ég gat elskað... jafnvel þó enginn hefði elskað mig á móti...
En ég held að það sé ekki hægt að deyja úr ástarsorg svo ég er alveg safe
Enda ætla ég líka að verða eldgömul kelling, langamma og allt tilheyrandi
Einhver á líka einhvertíma eftir að elska mig... ég er nefninlega svo elskuleg
Þegar ég tek mig til. Don't you think
Engin ummæli:
Skrifa ummæli