mánudagur, júlí 7

Humarhátíðin var að sjálfsögðu gargandi snilld svo ekki sé meira sagt :)
Mikið drukkið, mikið gaman og alveg hellingur af gríni.... hvað fannst mér fyndnast... hmmm ætli ég segji ekki þátttaka Gústu Gellu í Fear Factor þar sem hún fór hreinlega á kostum og fyndnari keppandi hefur POTTÞÉTT aldrei tekið þátt í þessu... innanlands sem utan! Fólk grét úr hlátri t.d. þegar hún brilleraði svo í Freestyle keppninni, ja og bara í öllum þrautunum. En hún fékk miða á ballið og auðvitað bjór handa okkur Diablos gellunum sem hvöttum hana til dáða, enda stúlkan í búningnum og allt :) Bjórinn var kærkominn þar sem langt var liðið á laugardag og kassarnir 3 sem við fengum gefins voru búnir... :)
Allavega... tær snilld en ég segji betur frá því seinna sökum andleysis hjá mér... og að ég er í vinnunni :)
Later... ;)

Engin ummæli: