Jæja..
lítið hefur verið um skrif síðustu daga enda ekkert að gerast!
Ég er enn að reyna að bæta mér upp svefninn sem ég missti af um síðustu helgi og hef ég ekki sofið fyrir martröðum síðan. Svona fer mórallinn með mann, þó spilar nú margt fleira inn í en hann.
Formlega ákveðið í dag af mér og múttu að ég fer ekki til Akureyrar um næstu helgi. Þarf að vinna mán. og þriðjudag svo ég fer á miðvikudag og hugsa að ég verði í heila viku. Hvernig sem sumir díla við það hahahaha :)
En það verður næs að heimsækja góðan vin minn, líta á blómapallinn hjá tengdamömmu (Birgitta "eiginkona" er nú samt örugglega að halda framhjá mér í USA haha) Ég ætla líka að vera dugleg að fara með prinsessuna mína í sund, við skemmtum okkur svo vel þegar hún var hérna á Höfn. Þetta verður bara næs... ég er viss um það :) Svo fer ég til höfuðborgarinnar og þá byrjar amstrið... mín "heittelskaða" kemur svo 3.sept held ég... ekki alveg viss á því. En ég þarf að pikka hana upp í KEF :) Hlakka ekkert smá til :)
Svo er Hafrún mín að fara út 14.sept og þá fer ég líka til KEF... iss ég verð bara að flytja til KEF :)
En á eftir að sakna Höffu hrikalega.... fer pottþétt út að hitta hana og aldrei að vita nema ég stingi bara líka af til UK. Það væri nú gaman... nú er bara að reyna að pússla skólamálum og peningamálum saman því ég ætla ekki að hætta í skólanum... sama hvar í heiminum ég verð! Það er alveg bannað!
En ætla nú ekki að tuða meira í bili. Er að vinna og best að koma sér að verki.
kveðja Lea Svefnengill
Engin ummæli:
Skrifa ummæli