fimmtudagur, desember 19

Fleh fleh!!!
Þvílíkt og annað eins sem ég get sofið...... Vaknaði ekki fyrr en rétt eftir hádegi í gær því ég sofnaði ekki fyrr en 5. En ekki nóg með það, heldur lagðist ég aðeins í bælið mitt um sjöleytið í gærkvöldi og svaf til miðnættis....... dem dem dem..... Þetta er ekki heilbrigt!!! Mest er ég þó fúl við sjálfa mig fyrir að hafa ekki farið að hlaupa. Ég er að breytast í einhvern haug held ég. Hef varla farið útúr húsi frá því ég kom. Nú bara verður að vera breyting á!!! Kibba að taka sig á (hei,rímar)

Búin að sitja við tölvuna í alla nótt. Aðalega að hlusta á tónlist..... fann fullt af lögum sem ég vissi ekki að ég ætti á file....alveg glöð með það... Það er svo gaman að hlusta á "gömul og góð" lög. Misjafnlega góð auðvitað hehe :Þ Annars er nú fyndið hvað manni getur fundist ömurleg lög góð bara afþví það eru svo skemmtilegar minningar sem fylgja....en svi-ona er það nú bara. Klukkan er rúmlega 6 að morgni og brátt fer bærinn að vakna úr næturdvalanum. Ætla að vera sofnuð þá vonandi.... Svo ég býð þér lesandi góður. Góðan dag og brostu framan í lífið..... þetta er allt þess virði :)

Engin ummæli: