*GEEEEEIIISSSSSP*
Aaaarrrrg!!!!! Ég fór ekki að sofa fyrr en klukkan 5, hvað er það??? Fór heim klukkan ellefu í gærkvöldi því ég var svo þreytt, ekki búin að vaka nema 9 klukkutíma!!! Lagðist upp í rúm, alveg farin að slefa á koddan, þá fæ ég sms. Skoðaði það og lagðist til hvílu, þá hringdi síminn. Fær maður engan frið :) Nei nei þetta var allt í lagi. Allir e-ð svo góðir og fallegir við mig :) Svo auðvitað mundi ég eftir því að hún Eyrún "crazy girl" Gísladóttir á afmæli í dag :) Til hamingju elskan mín :****** Auðvitað hringdi ég um leið og klukkan sló 12 því auðvitað ætlaði ég að verða fyrst til að óska þessari stórvinkonu minni til hamingju :) Þar fór klukkutími og ég glaðvöknuð og spræk um eittleytið aarrrrrg!!! Hvað á maður þá að gera, fara í tölvuna?? Nei andskotinn hafi það. Búin að vera þar 2 síðustu nætur og vissi alveg að allt skemmtilega fólkið sem ég var að rabba við á MSN var heima sofandi núna!!! Þannig að ég kúrði mig undir sænginni með Ljóðasafn Steins Steinarr og las hana spjaldanna á milli. Auðvitað varð ég klökk þegar ég kom að uppáhaldsljóðinu mínu "Heimurinn og ég" Þetta ljóð hefur alltaf haft sérstaka merkingu fyrir mig.... þó ekkert endilega þessa sömu og henni er ætlað í upphafi.
Heimurinn og ég
Þess minnist ég að mér og þessum heimi
kom misjafnlega saman fyrr á dögum.
Og beggja mál var blandið seyrnum keimi,
því báðir viisu margt af annars högum.
Svo henti lítið atvik einu sinni,
sem okkur, þessa gömlu fjandmenn sætti:
að ljóshært barn sem lék í návist minni,
var leitt á brott með vofveiglegum hætti.
Það hafði veikum veitt mér blessun sína
og von sem gerði fátækt mína ríka.
Og þetta barn, sem átti ástúð mína,
var einnig heimsins barn og von hans líka.
Og við, sem áður fyrr með grimmd í geði
gerðum hvor öðrum tjón og falli spáðum,
sáum það loks í ljósi þess sem skeði,
að lífið var á móti okkur báðum.
Nú ölum við ei lengur beiskju í barmi
né byrgjum kala neinn í hjörtum inni,
því ólán mitt er brot af heimsins harmi,
og heimsins ólán býr í þjáning minni
Steinn Steinarr.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli