þriðjudagur, desember 17

Leti Leti
Já það er sko leti á þessu heimili, allavega mér. Að vakna ekki fyrr en rúmlega 2á daginn nær auðvitað ekki nokkurri átt!!!! Það að hanga á netinu til 6 á morgnana því síður!!! Er enn geispandi og slugsandi... samt alveg búin að vera vakandi í 3 og hálfan tíma.
Rölti mér á bókasafnið.....tók enga bók. Jú Ljóðasafn Steins Steinarr. Lét mömmu samt taka Hobbit. Alveg komin tími á að hún lesi hana. Ég las hana einmitt fyrst fyrir 10árum síðan. Vá hvað ég er orðin gömul!!! Gleymdi samt bókinni sem ég er að lesa í Reykjavíkinni svo ég kannski hangi bara á netinu öll jólin !!! Það væri nú kannski ekkert nýtt. Held að mamma gamla yrði nú nett brjáluð ef ég færi á aðfangadagskvöld í tölvuna að surfa. Hef undanfarin jól alltaf tekið leikrit, svo sit ég umvafin í risateppið hennar mömmu í uppáhaldsstólnum mínum og hrýt (slefa) hahahahahaha. Maður verður nú að leggja sig eftir matinn!!!

Annars held ég að ég sé búin að redda jólagjöfunum. Svona þannig!!! Æ nenni ekki að stressa mig yfir þessu. Það gengur ekki.... samt komin einn (til mín þá) pakki í stofuna. Ég auðvitað búin að grandskoða hann. Held sko alveg að ég viti hvað það er....
Fæ nú ansi fáa pakka í ár. Bara ánægð með það :) Ég hef nefninlega staðið mig að því undanfarin jól að nenna ekkert að opna þá. Kannski afþví ég veit oftar en ekki hvað er í þeim. Er sko farin að ganga í jólagjöfinni frá mömmu :Þ Keypti hana líka sjálf.... hefði samt alveg verið til í að fá einn pakka í viðbót. hehe Eða einn hlut réttara sagt. En bíð bara aðeins lengur. Verð nefninlega 25ára í apríl og veit alveg að ég fæ þetta þá. Svona allavega ef ég þekkji vinkonur mínar rétt :)

*Dísuhornið*
Nú hefur staðið í ströngu hjá henni Dísu. Búin að vaka í rúman sólarhring!!! Skil á verkefninu sem hún er búin að vera að gera var kl.17 í dag. Um 3 leytið var komin bjartur tónn í liðið og von um að ná þessu í tíma farin að skríða fram úr fylgsnum sínum.
NÝJUSTU FRÉTTIR:
Dísu og hópnum hennar tókst að skila verkefninu í tíma. Til hamingju með það krakkar :)
Nú er bara fyrir elskuna að klára skýrslur og ná sér niður eftir ansi mikla koffín neyslu síðasta sólarhring. Svo fáum við nú vonandi að sjá smettið á henni innan fárra daga hér í Lobstercity :)

Engin ummæli: