Hahahahaha já nú er gaman..... Var að koma af Kaffihorninu þar sem Parket fór alveg hreint á kostum...svaðalegt stuð :) Reyndi nú e-ð að tjá mig á dansgólfinu en Gunnar Örn fór að reka míkrafóninn upp í andlitið á mér þá hætti ég bara að tjá mig.... edrú manneskjan og svona.... Margir ráku nú upp stór augu þegar ég það sá mig sitja og sötra 7-up í rólegheitunum..... Sprite er víst fyir fallega fólkið....iss.... ég og Axel komust alveg að því að 7-up er betra sko.... það er fyrir fallega OG foxy fólkið. Hann vill endilega að ég verði bara í auglýsingunum :) Alger dúlla hann Axel :*** Annars var ég nú bara róleg á því sko.... hafði mig ekkert í frammi....bara í svona kjaftafíling :) Finnur fór alveg hreint á kostum með einhverjar vibba tennur upp í sér....datt alveg í karakter þegar hann setti þetta ógeð upp í sig, ég þurfti nú að horfa aðeins á hann fyrst svona til að vera viss um að þetta væri nú hann..... en djöfull hló ég.... Held að Finnur hafi verð góður kandidat fyrir ljótasta mann á Íslandi þegar hann var með þetta.... þó Finnur sé nú alls ekki ómyndarlegur drengur!!! Ég held að ég hafi nú líka alveg farið hjá mér þegar hann sagði að ég ætti að vera bloggdrottning....væri svo heiðarleg...segði allt...... það er nú ekki alveg rétt....held nú ýmsu fyrir mig sko...en skrifa það sem mér dettur í hug :) Takk Finnur :) Fullt af skemmtilegu fólki úti í kvöld!!! Og hellingur af myndavélum á lofti.... ég fer og brosi blítt til nokkurra fljótlega :) Fá að nota e-ð af þessum myndum svona fyrst ég á enga myndavél :) Stærstum hluta af kvöldinu eyddi ég þó í hrókasamræðum við "hönk" bæjarins...þóttist vera kærastan hans svo grey drengurinn fengi frið frá valkyrjum bæjarins sem soguðust að honum eins og flugur að ljósi.... vildi óska að ég væri svona foxý.... en ef þið bara vissuð :) Ég fékk allavega deit út úr þessu öllu saman...samt engin erótík (dem) Við Hlynur F ætlum að fá okkur ís í Álfheimunum næst þegar hann kemur til Reykjavíkur.... erum bæði svona ísfan :) Það verður heppin gella sem eignast hann fyrir mann og ég held að ég myndi pottþétt reyna við hann ef hann væri nokkrum árum eldri :)
hehe en nóg um það..... það er fullt af guðdómlegum karlmönnum þarna úti og ég ætla mér bita af þeirri köku hehe :)
Svo ef Craig David kemur til Íslands ÆTLUM við Haffa að krækja í hann... þó svo það þurfi að vera með valdi :)
Góða nótt :***
Engin ummæli:
Skrifa ummæli