Til Snúllu og Heiðars með jólakveðju :)
Lögfræðingar!
Það er oft sem fólk kemst illa að orði... hér er vitnað í nokkra lögfræðinga :)
Lögfræðingur: Var þetta sama nef og þú braust sem barn?
Lögfræðingur: Segðu mér læknir, er það ekki rétt að í flestum tilfellum sem maður deyr í svefni, þá veit hann ekkert af því fyrr en morguninn eftir?
Lögfræðingur: Og hvað gerðist þá?
Vitni: Hann sagði við mig: „Ég verð að drepa þig þar sem þú getur borið kennsl á mig. “
Lögfræðingur: Og drap hann þig?
Lögfræðingur: Varst það þú eða bróðir þinn sem dó í Víetnamstríðinu?
Lögfræðingur: Yngsti sonurinn, þessi tvítugi, hvað er hann gamall?
Lögfræðingur: Varstu einn, eða varstu einn á ferð?
Lögfræðingur: Hversu lengi hefur þú verið franskur Kanadamaður?
Lögfræðingur: Átt þú börn eða eitthvað þess háttar?
Lögfræðingur: Ég sýni þér sönnunargagn 3 og spyr hvort þú þekkir manninn á myndinni.
Vitni: Þetta er ég.
Lögfræðingur: Varst þú viðstaddur þegar myndin var tekin?
Lögfræðingur: Varst þú staddur hér í réttarsalnum í morgun þegar þú sórst eiðstafinn?
Lögfræðingur: Segðu mér frú Johnson, hvernig lauk fyrsta hjónabandi þínu?
Vitni: Með andláti.
Lögfræðingur: Og hver var það sem dó?
Lögfræðingur: Veist þú hversu langt á leið þú ert kominn núna?
Vitni: Ég hef verið ólétt í 3 mánuði þann 8. Nóvember.
Lögfræðingur: Þannig að getnaður hefur átt sér stað þann 8. ágúst?
Vitni: Já.
Lögfræðingur: Hvað varst þú að gera þá?
Lögfræðingur: Frú Jones, telur þú að þú sért í tilfinningalegu jafnvægi?
Vitni: Ég var það.
Lögfræðingur: Hversu oft hefur þú framið sjálfsmorð?
Lögfræðingur: Svo þú varst í burtu þar til þú komst til baka?
Lögfræðingur: Hún átti þrjú börn, ekki satt?
Vitni: Já. Lögfræðingur: Hversu mörg þeirra voru drengir?
Vitni: Ekkert þeirra.
Lögfræðingur: Voru þetta stúlkubörn?
Lögfræðingur: Þú veist ekki hvað þetta var og þú veist ekki hvernig það leit út, en geturðu lýst því?
Lögfræðingur: Þú segir að stiginn hafi legið niður í kjallara? Vitni: Já.
Lögfræðingur: Þessi stigi, lá hann einnig upp úr kjallaranum?
Lögfræðingur: Hefur þú búið í þessum bæ alla þína ævi?
Vitni: Ekki enn.
Lögfræðingur: Manstu nokkurn veginn klukkan hvað þú rannsakaðir lík Hr. Edington?
Vitni: Það var að kvöldi til. Krufningin hófst um klukkan 8:30.
Lögfræðingur: Og Hr. Edington var þá látinn, ekki satt?
Vitni: Nei fíflið þitt, hann lá á skurðarborðinu og velti fyrir sér hvern fjandann ég væri að gera.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli