Helgin
Ný afstaðin helgi var bara nokkuð góð.... allavega sú "þægilegasta" í langan tíma.
Föstudagur:
Vaknaði snemma og settist við lærdóminn. Hann var búin að sitja á hakanum í heila viku og nú var bara að hella sér í þetta. Lærði fram yfir kvöldmat en þá fékk ég mér að borða og hafði það svo bara gott.... fór snemma í háttinn.
Laugardagur:
Aftur vaknað fyrir allar aldir og sest við lærdóm.... um fimmleytið var heilinn orðin þreyttur og súr og þá var ákveðið að láta staðar numið. Skellti mér til Keflavíkur þar sem við frænkurnar elduðum dýrindismat og spiluðum Trivial.
Var komin aftur í borgina rétt fyrir miðnætti og skellti mér þá í heimsókn til góðs vinar míns. Horfði á "Jackass, the tour" var reyndar búin að sjá meirihlutann af þessu en það var smá í endann sem ég hafði ekki séð... Djöfull eru þetta geðveikir gæjar!! Lagðist svo fyrir með nammi og horfði á videó fram eftir nóttu :) Fór ekki að sofa fyrr en afar seint svo ég leyfði mér að snorka fram yfir hádegi.... Gerði ekki mikið á sunnudaginn nema vera þreytt... skiljanlega, og um kvöldið horfði ég svo á videó með Birgittu.
Góð afslöppun og öll efnaskipti í líkamanum afar jákvæð :)
Fleiri svona helgar takk :Þ
Engin ummæli:
Skrifa ummæli