þriðjudagur, mars 18

Óstjórnlegar langanir
Þær eru skrítnar þessar langanir. Ég get t.d. ekki hætt að hugsa um Cocoa Puff, mig langar svo rosalega í það. Síðast þeger mig langaði í það keypti ég það ekki heldur "Kodda" mmm það kláraðist á 2 dögum... mig langar líka í brauð með mysing,,, mmm og já ristað brauð með bönunum nammi namm (er farin að halda að ég sé bara svona svöng)
Allavega gott að súkkulaðilöngunin er búin í bili.. kláraði kvótann á sunnudaginn :) Eða kannski búin að fá góðan slatta af endórfíni í bili *blikk blikk*
Mig langar í bað... alveg rosalega. liggja í olíum og froðu ahhh láta verkina líða úr sér. Já ég er nefninlega með svo rosalega verki í bakinu... versnar stöðugt. Ég get ekki lyft annarri hendinni upp fyrir haus lengur. Mig langar líka óstjórnlega í fótanudd... hefði nú alveg gott af fótsnyrtingu... þeir eru viðbjóður.... hafa ekki verið svona slæmir síðan í síldinni í Óslandinu. Er ekki mikið að láta sleikja á mér tærnar þessa dagana :Þ Mig langar eiginlega bara í alhliða nudd... en ég veit að það verður ógeðslega vont... ég má ekki koma við hægri öxlina þá er ég komin með hausverk... en þýðir ekki að væla. og mest af öllu langar mig í makkarónugraut og pizzu... ( hvað er þetta stelpa.. þú varst að borða)
Úff kannski ég fari að gera eitthvað í þessum löngunum... og líka þessum leyndu sem ég tíunda ekkert hér hehe
Ciao :***

Engin ummæli: