föstudagur, mars 14

Jæja góðir hálsar, hausar já og bara restin af búknum.
Þó ekkert hafi verið skrifað í heila viku (saknaði mín enginn?? ) þá er nú ekki mikið ða segja.
Ég, Una og Heiða sátum heima hjá mér á fimmtudagskvöldið og drukkum jór og rifjuðum upp prakkarasögur frá því í gamla daga.
Heiða setti upp furðusvip þegar við sögðum henni frá sumumathæfum okkar.... kannski oft velt því fyrir sér í gegnum árin.. hver gerði þetta... og hitt :Þ Mikið gaman og mikið grín sem varð til þess að Glaumbar fékk ekki að njóta okkar fyrr en seint og síðar meir... samt nógur tími til að brillera aðeins á dansgólfinu.... fékk nóga athygli þar... hözzlaði handa Unu áf mestu snilld svo ekki leið mínúta sem við vorum glaslausar... svo mikill var galsinn í okkur að ekki var hægt að fara heim eftir lokun heldur skelltum við okkur í partý og segji ekki meir.
Föstudagurinn kom sólríkur og fagur og eftir smá lúr var haldið í Kringluna til að versla áfengi fyrir kvöldið... þar hitti ég Rögnu mömmu hans Sigga.. hún er alltaf jafn yndisleg kona og sagði hún mér að ég væri orðin afar myndarleg kona... enda daman alveg að verða 25ára... ekki hægt að kalla mig stelpu lengur (samt finnst mér alltaf jafn skrítið þegar krakkar vísa til mín sem "konuna")
Svo hringdi Guðrún G og boðaði til Hornfirðingapartýs sem var auðvitað málið :) Um kvöldið var svo etin dýrindis matur hjá Stellu... málað sig, drukkið bjór og svo loks skellt sér í partý þar sem mættar voru einhverjar bekkjarsystur mínar fyrrverandi... það var auðvitað fjör enda alltaf gaman að vera þar sem Guðrún er :) Meðan Gunnhildur var að ferja liðið sátum ég Guðrún og Lóa og biðum eftir síðustu ferð og drukkum UZO sem ég ætla aldrei aftur að drekka... Guð minn góður... enda var það endalokin á kvöldinu hjá mér... allavega sem siðprúð KONA....Fór á Players á Austfirðingaball og eyddi mestum tímanum fyrir utan í einhverju skoti að pissa með þeim sem ég dró með mér í hvert skipti... röðin á klóið var svo löng að það var banvænt og svo mátti maður ekki fara inn á karlaklósett... hmmm ekki eins og á Víkinni!!! Ballið er í gloppum en man ég samt að ég stökk til og fór í loftköstum á dansgólfið þegar Sú Ellen fór að spila gamla góða slagarann KONA... Gólaði ég með laginu eins og geldur hundur og hafði afara gaman af.... fann Unu ekki fyrr en alveg í endann á ballinu svo ég dansaði bara við hina og þessa... fæsta þekkti ég... hitti þó einhverja gamla kunningja eins og Karólínu... hún var með mér í sumarbúðum hérna í gamla daga... allavega... ætla ekki að fara að útlista allt ruglið sem ég sagði og gerði á þessu balli.
Eftir lokun var svo haldið á Glaumbar þar sem ég hitti Hlyn F og hann ætlaði nú að passa mig fyrir öllum strákunum (að minni ósk) en svo blikkaði ég bara nær hvern einasta karlmann sem labbaði framhjá (að hans sögn) Lenti svo undir lokun ´ði hörkurifrildi við einhvern asna (sem ég hélt reyndar að ég þekkti.. en fólk er fífl) Svo fór ég á Hlölla og fann þar góðan eiginmann handa Unu... hún var ekki alveg jafn sammála mér með það en ég var ákveðin og hlustaði ekki á neitt múður.......... jamm óhætt að segja að ég sé bil!!!
Laugardagurinn fór svo í að æla lifur og lungum ásamt öðrum innyflum... lá í rúminu þann daginn... Fór reyndar á McDonalds en gat ekki einusinni setið upprétt í sætinu á bílnum... enda datt ég út úr honum þegar við komum heim. Vikan hefur svo farið í ógurlegasta niðurtúr sem ég hef upplifað og afar mikin svefn... ég er að sofa 12- 14 tíma á nóttu... plús það sem ég sef á daginn.
Nú er ég öll að koma til og ætla að fara snemma að sofa í kvöld og svo í matarboð á morgun alla leið til Keflavíkur.. Ekkert djammrugl á næstunni :)

Engin ummæli: