Jæja kominn fimmtudagur og ég að jafna mig eftir ark dauðans :Þ
Búin að vera ömurleg að blogga undanfarið en verð að fara að gera bragabót þar á... annað gengur ekki!!
Fór á AA fund í gærkvöldi... reyndar er ég ekki í AA en fór með vinkonu minni sem átti enmitt 2 ára edrú afmæli á dögunum.. Til hamingju elskan mín með það.... ég er rosalega stolt af þér :)
Allavega á þessum fundi var einhver gaur að tala sem ég náði ekkert að tengja við...kannski afþví að ég heyrði varla það sem hann sagði. Hann fór svo fram þegar næsti fór í púltið og hefur ætlað lauma einu freti hljóðlega á ganginn en vildi ekki betur til en svo að þetta var þrumari sem endurómaði um gamalt timburhúsið.... ég barðist við að hemja hláturinn þegar hann kom inn og leit skömmustulega í kring um sig en ég gerði þau reginmisttök að líta á vinkonuna þegar mér hafði næstum tekist það. Þá var öll von úti... hún sat og tísti og ég sat næstu 10 mínúturnar eldrauð í framan og hristist af hlátri... það voru farin að leka tár. Eins og þið getið nú sagt ykkur var þetta alveg hrikalega vandræðalegt því auðvitað átti ég að vera að hlusta á náungann í púltinu og hann var ekkert að tala um neitt gleðiefni. Þegar ég loksins náði að hemja hláturinn var ég löngu búin að gleyma afhverju ég hafði byrjað að hlæja... svona er það nú.
Svo var stefnan tekin á kaffihús en eftir að hafa þvælst um einstefnugötur miðborgarinnar án þess að komast nálægt því kaffihúsi sem okkur langaði á þá gáfum við það upp á bátinn og drifum okkur í bíó. Það voru bara 2 myndir sem byrjuðu klukkan hálfellefu og það kom nú ekki til greina að ég færi á Daredevil með Affleck svo við skelltum okkur á Chicago. Vinkonan ekki alveg í fílingnum því hún þoldi víst ekki "Rauðu Mylluna"... Niðurstaðan var samt sú að hún fílaði hana meira en ég... en auðvitað fílaði ég hana :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli