Mjólk er afar mikilvæg
Mér finnst mjólk hreinlega vond nema kannski með nýjum snúð eða Betty Crocer köku en mjólkin verður að vera ísköld. Annars fæ ég bara klígju. Ég er fyrst að átta mig núna á því hve mjólkin er mikilvæg. Skítt með það að hún sé góð fyrir tennur og bein. Ef ég ætti mjólk þá þyrfti ég ekki að borða Special K-ið mitt þurrt. Ég gæti búið til grjónagraut, makkarónugraut, eggjaköku. Annars kann ég ekkert að búa til eggjaköku. Skyrið væri betra. Já mjólkin er mikilvæg. Ég er bara þakklát fyrir að vatnið úr krananum er drykkjarhæft á Íslandi, í alvöru. Pælið í því ef við ÞYRFTUM að kaupa það líka. úff.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli