miðvikudagur, mars 26

Jæja Elskurnar.
Það er nú vægt til orða tekið að ég sé lélegur bloggari.
Lofa alltaf að skrifa oftar en ekkert gerist. Ekki það að ég komi ekki nálægt tölvu (það var reyndar málið um helgina) heldur er það e-ð annað sem heldur mér í burtu.

Auðvitað var stelpudjammið á föstudaginn alger snilld.
Una kom til mín um 10 leytið og var hvorug okkar í fíling. Okkur fannst við svo ljótar eitthvað. Hálftíma seinna var viðhorfið allt annað og við vorum voða beibur híhí...
Eftir stutt hársléttunarstopp á Grensásveginum var haldið á Ölver því þar var Hafrún (lögga, ekki könguló) ásamt helling af löggukvensum sem voru að gera það misgott með mækinn.
Birgitta var óð og uppvæg að taka lagið en vildi fá meðsöngvara og go-go dansara en við hinar vorum áfáanlegar í þannig vitleysu. Vantaði líklegast kjarkinn. Birgitta (Laxdal) hefur sjálfsagt haldið að hún myndi hljóma eins og nafna sín Haukdal. En við verðum bara að bíða og sjá með það :)
Drifum okkur fljótlega á Gauk á Stöng þar sem við áttum frímiða sem giltu til eitt á R&B kvöld. Ansi léleg mæting en who cares við sátum bara og skemmtum okkur konunglega. Fyrr en varði var ekki þverfótað fyrir karlmönnum hjá borðinu okkar, enda 5 fagrar meyjur á ferð. Kannski runnu þeir á lyktina... hmm hvað haldið þið Una og Birgitta hahaha :) *hóst hóst* :Þ
En ekki nenntum við að hanga í þessum strákafans enda kvöldið ungt og þetta var nú einu sinni "girls night". Ég, Una og Birgitta röltum yfir á Sólon en Hafrún og Bryndís gáfust upp þarna. Já þegar kvöldið var rétt að byrja að vera skemmtilegt. Á Sólon hitti ég zJónas og tepptum við stigann í fagnaðarlátum, seinna um kvöldið tókum við nettan dans á gólfinu, svona "for old times sake".
Áður en varði vorum við stelpurnar aftur umkringdar drengjum sem gátu ekki staðist eggjandi mjaðamahnykki okkar. Við dönsuðum frá okkur allt vit og þegar klukkustundirnar voru orðnar rúmlega 3 non-stop á dangólfinu var ákveðið að nú væri komin tími á gamla góða Glauminn. Djamm er ekki djamm nema að enda á einum hring þar inni. Eftir stutt stopp þar inni sem ég eyddi mestu í sms daður við ákveðin aðila þá var haldið heim... Auðvitað enduðum við Birgitta á að sníkja gotterí í bakaríinu. Við verðum að fara að koma heim seinna en 6 því snúðarnir eru aldrei tilbúnir. Klukkan var farin að ganga 9 þegar ég fór afar sæl að sofa.

Laugardagurinn byrjaði seint og síðar meir því ekki komst ég á lappir fyrr en um 4 leytið. Um 6 leytið hentum við B okkur í Laugardagslaugina að þrífa af okkur djammslenið í pottunum. Lágum þar í 2 tíma soðningu í hressum félagsskap Sindra, Dadda, Valda og Gunnar Steins. Fljótlega fór þó fólk að sneiða framhjá "okkar" hluta pottsins þar sem samræðurnar voru flestar vel bannaðar innan 18ára.
Við náðum aldrei fullum krafti eftir soðninguna og lágum yfir, aldrei þessu vant, góðum myndum á RÚV. Ég var steinsofnuð um 2 leytið og ekki sjéns að vekja mig. Alveg búin.

Vaknaði á sunnudaginn klukkan 3 . Búin að sofa í 12 tíma. Það er aldeilis svefn sem maður þarf. Úff.... Rólegheit allan sunnudaginn. Bara nettur lærdómur. Er búin að vera að gera ritgerð sem ég skilaði í morgun. Núna get ég aðeins slakað á... hmm var ekki einmitt það sem ég gerði um helgina.

Engin ummæli: