föstudagur, mars 21

Þvílík og önnur eins skapvonska sem hefur dunið yfir mig undanfarið. Ég er nú ekki vön að sýna mikil skapbrigði nema kannski auðvitað við þá sem næstir mér standa. En undanfarið hef ég getað kyrkt mann og annan í illskuköstum. Lenti að ég held bara í fyrsta skipti í alvöru rifrildi við góðan vin minn í gær.... það tók ekki nema kannski 5 mín. en ég var alveg að springa úr reiði og sárindum.. langaði bara að skella einhverri hurð.. en það var engin til staðar svo ég hélt aftur af sárinda/illskutárunum og beit á jaxlinnn. Betra það en að segja e-ð sem ég gæti séð eftir... þó ég meini það alveg. Stundum er bara betra að þegja... það hef ég lært.

Stelpukvöld í kvöld og mig hlakkar EKKI til... ætla nú samt ekkert að beila en það er nú bara af því að Una er að koma.
Annars myndi ég sitja heima og bora í nefið... ástæðan fyrir þessu að ég er í all time low... útlitslega séð... hef nú bara sjaldan verið svona herfilega ljót.. er ekki að sjá að make-up geti bjargað miklu... og það er ekki gaman að fara á útsýnisrölt þegar maður er ekki að fíla lookið á sjálfum sér... þannig er það bara.
En mmmmm kannski verð ég komin í betra skap þá. Þessi fyrrumtalaði vinur minn kom nefninlega áðan með kjúkling og ís sem hann gaf mér af *slafr* þá kannski kemst ég í meira jafnvægi hehehe :)

Lokaþátturinn af Bachelor var í gær... ég vissi fyrir löngu hver myndi "vinna". Vissi það í öðrum þætti svo ég hætti að horfa þangað til svona 3 síðustu. Ég held að þessi Aaron sé alger kúkur og hverjum er ekki sama hvað verður um hann... hann er pottþétt "player" Horfði nóg til að sjá það hmmm :Þ
En allavega þá eru þau hætt saman og margar sögur eru á kreiki hvers vegna.. hann átti meðal annars alltaf að hafa verið að glápa á aðrar gellur... víst heldur ósæmilega. Ég myndi ekki kippa mér upp við það þó kærastinn minn væri að skoða kjötborðið, svona svo lengi sem hann gerir sér ekki sérferð í búðina til þess hmmm...
Það hlýtur bara að hafa vantað traustið til þess... allavega gæti ég ekki borið virðingu fyrir manni sem væri slummandi og Guð má vita hvað meira við margar gellur í einu... og öfugt :)

Engin ummæli: