sunnudagur, mars 30

Veðrið úti er ömurlegt.
Hvernig var það.... átti sumarið ekki að vera komið. Ég var allavega búin að taka upp strandpilsið mitt og tilbúin að halda á vit ævintýranna sem ávalt fylgja sumrinu. En þá fer bara að snjóa!!!´
Ég ætla að skríða upp í rúm og ylja táslunum mínum sem eru orðnar bláar.

Ein um alla framtíð verð
og hugsa um allt er var forðum
Þú dróst upp raddar þinnar sverð
og drapst mig svo með orðum.

Engin ummæli: