Jæja þá er komið að því að halda til höfuðborgar norðurlandsins Akureyrar!!!
Kíkti á lífið í gær....
Fyrst fórum við í Jackass partý á Astró sem var alveg ágætt en ekki alveg okkar thing svo stoppið þar var ekki nema klukkutími...
þá var rölt upp Bankastrætið (með nokkrum stoppum því alls staðar voru Hornfirðingar) Þá tóku við biðraðir dauðans og hélt ég að það væru bara komin áramót í miðborginni. Meira segja var nokkuð löng röð fyrir utan Nelly's og þá hlýtur nú e-ð mikið að vera.
Biðröð dauðans var á Sólon og var fólk að reyna að troðast til að fara inn fram fyrir en dyraverðirnir voru nú ekkert á því :) En auðvitað sagði Prinsessan bara hæ og einn tiltekinn (yndislegur) dyravörður ruddi fólki frá svo ég kæmist nú :)
Stoppið var nú ekki langt á Sólon, ekki nema kannski hálftími og ákváðum við að kíkja á nýju innréttingarnar á FELIX (áður Sportkaffi). Staðurinn orðinn ansi flottur en kannski heldur bjart á dansgólfinu. Náðum rétt að finna týnda sauðinn okkar og skelltum okkur svo sem leið lá niður í Hafnarstræti... kíktum á Spotlight þar sem Prinsessunni tókst enn og aftur með þokka að sleppa við að borga :) Uppi var frekar ömurleg tónlist enda Skjöldur DJ og hann kvaldi eyru mín... en niðri var gamla Thomsen tónlistin þó gæjarnir væru ekki lengur berir að ofan, dansgólfið troðið né matarolíureykur (já það er matarolía í þessum reykvélum) til að hefta útsýni og súrefni allsvakalega.
Nú var móðurskipið farið að kalla enda enga steik að fá á Spotlight svo við B töltum okkur yfir á Glaumbar. Þar var massa mikið af liði og Þór Bæring í búriinu sem ég er búin að sjá að klikkar alls ekki. Svo pakkað var á dansgólfinu að við færðum hringborðið til að dansa þar... þegar troðningurinn var kominn þangað var farið upp á bekki og borð.... og tjúttað allsvakalega... tær snilld...
Bara fínt lið á Glaumnum... reyndar einn farinn að sofa úti í horni... e-ð þreyttur greyjið :) En það dugði að kasta nokkrm ísmolum í hann og þá fékk hann smá rænu... svo var reyndar einn sem var alltaf að klípa í rassinn á mér... endaði með að ég sagði honum til syndanna... ég vissi nefninlega ekki til þess að hann og rassinn á mér þekktust hmmm...
Í sparnaðarskyni var svo húkkað far heim... spara spara spara... fór að sofa klukkan 7 og vöknuð klukkan 10 úff meira ruglið...
well u all... reyni nú að pikka smá pistil fyrir páska :)
By the way.....mér finnst ég vera harkan 6 miðað við gamla kellingu hehe... nei 3 dagar í stórafmælið... sweet 25 :*)
Ætla að fá mér Betty namm namm... nei bíð þangað til B er komin norður líka hehe :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli