mánudagur, apríl 14

Jæja síðasti dagurinn í almennum ungdóm... ekki það að ég verði e-ð gömul á morgun... þá verður maður víst samt að fara að fullorðnast. Þann 16. eru nú einu sinni 11ár síðan ég fermdist hehe :)
Mér finnst bara gaman að verða 25 ára :) Ætla samt í Sjallann á ball með Skímó eins og ég gerði þegar ég var tvítug... ætla bara að halda því fram áfram að ég sé 20.
Annars lítið í fréttum... komin til Akureyrar... það er alltaf gaman. Litla prinsessan mín lasin og náði að smita mig af einhverju af þessu... allavega var ég farin í bælið klukkan 10 í gærkvöldi. En allavega... meira seinna :´******

Engin ummæli: