þriðjudagur, apríl 15

Tíminn líður hratt....

Enn eitt árið liðið og aftur kominn 15.apríl :)
Ég vaknaði eldsnemma í morgun og staulaðist fram á bað til að bursta tennurnar og laumaðist til að líta eftir hrukkum í leiðinni, en það var enga að sjá.
Auðvitað er ég löngu komin með gráu hárin og það þýðir lítið að stríða mér á þeim í tilefni dagsins... þau voru sko komin fyrir tvítugt. Talandi um tvítugt, þáq verð ég að segja að mér finnst ekki vera komin 5 ár síðan við Halldóra sátum í eldhúsinu á Kirkjubrautinni og fengum okkur Bailey's og bjór í tilefni dagsins, sei sei nei...
Það var mikið grín gert af mér í gær því ég man að þegar ég varð 12 ára þá átti ég afmæli á sunnudegi (páskadegi og bróðir minn fermdist þessa páska) og þegar ég var 14ára átti ég afmæli á miðvikudegi (fermdist daginn efttir) þegar ég varð 19ára, á þriðjudegi og þegar ég varð 23 á sunnudegi (aftur páskadagur) Ég er bara skrítin og an svona hluti :)

Það var lika mikil umræða um ömurlegasta afmælisdaginn... Veit ekki alveg hvort minn var þegar varð 24, því deginum eyddi ég í flutningabíl á leiðinni til Hafnar, en það var svo æðislegt eitthvað að gerast í lífinu þá og æðislegur strákur sem var fyrstur til að óska mér til hamingju.
Eða þegar ég var 19 og ég var í Þýskalandi og var að þrífa klósett á afmælisdaginn... ætli það hafi ekki verið þegar ég var 14 ára. Ens og margir frá Höfn muna var það einmitt daginn sem Jóhann heitinn dó.
Besta afmælisveislan var held ég 18ára veislan...þegar perutertur voru bakaðar í miklu magni og nokkrir kassar af bjór. Fyrst var étið á sig gat og svo drukkið og farið í kökuslag.... kannski var Kizi ekki eins glaður því "veislan" var haldin á Ásgarði hehe :) Tvítugsafmælið var líka meiriháttar...geggjaður matur, brjáluð bolla og magnaður húmor sem náðist svakalega vel í Gestabókina (ekki þessa á síðunni;) )

Æ það er gaman af þessu og bara æðislegt að verða 25 :) Ég er sko ekki shit gömul :P
Annars þá er spurningin hverju ég á að lofa sjálfri mér í ár....
Stóð við allt sem ég lofaði mér í fyrra.... ætlaði mér kannski meira en sumt er ekki í mínum höndum :)
Ég finn e-ð gott takmark fyrir næsta árið :)

Til hamingju með afmæli Svafa Mjöll (mágkona mín) og Sigurjón (bróðir ömmu) :) líka Reynir hennar Dúddu og auðvitað Vigdís Finnboga(ég er sko viss um að hún les þessa síðu)
Ég er meira segja búin að fá pakka.... fékk rós frá strák sem ég segji kannski frá seinna... aldrei að vita.... Svo fékk ég páskaegg frá litlu prinsessunni minni... og mömmu hennar :)


Takk allir sem sendu mér sms, hringdu og sungu fyrir mig (þetta var æðislegt B) og sendu mér kveðju í gestabókina... mér þykir svo vænt u ykkur öll :**** alveg æðislegt.... :*****
KNÚS

Engin ummæli: