Ég sé að það eru fleiri en ég sem eru húkt á blogginu hjá Gísla Marteini og Loga :)
Gaman að fylgjast með hvað er að gerast í Riga og allt í einu er maður orðinn nettur Eurovision fan :)
Helga Lucia heldur að ég búi á KaffiHorninu sem er alls ekki rétt því ég hef bara komið þangað einu sinni síðustu 5 mánuði. Ég hlýt samkvæmt því að vera með alvarlega unglingaveiki því eins og við öll vitum eru þeir ALDREI heima hjá sér (þetta sagði mamma allavega alltaf við mig þegar ég var upp á mitt VERSTA / BESTA)
Ég bið Jónas afsökunar á að hafa ekki tekið áskorun hans... ég nennti bara ekki út!
Ég skal lofa að koma fljótlega... kannski á laugardaginn :)
Annars er mig farið að hlakka til helgarinnar og er sú tilhlökkun með allt öðrum formerkjum en áður... ég sé nefninlega fram á afslappandi sjónvarpshelgi...
Á föstudaginn er nefninlega Ungfrú Ísland og seinna um kvöldið er eðal myndin G.I.Jane þar sem Demi Moore fer með aðalhlutverkið... þetta er ein af uppáhaldsmyndunum mínum og ég ætla að sitja með snakk og gos og slappa af :)
Það þarf nú ekki að nefna það að á laugardagskvöldið er svo hið afar skemmtilega Eurovison í öllu sínu veldi og allir drykkjuleiki tilbúnir og partýið bíður bara eftir að byrja :) Ég vona bara innilega að videocamera verði hvergi nálægt í þetta skiptið þó svo sannarlega hafi verið gaman þarna um árið... LOL smá einkahúmor fyrir þá sem muna eftir þessu... m.a. Rúnka Mink, Sibbi Sól og fleiri skemmtilegir karakterar... verst að það náðist ekki á filmu þegar Gústa ætlaði að stytta sér leið í gegnum beðið við Hóteltúnið og festist..... Það tók mig hálftíma að komast frá Kirkjubrautinni og upp á Hótel ég hló svo mikið.. (Þið sem þekkjið ekki staðarhætti þá tekur það mig hálfa mínútu vanalega:) )
En ég er farin í bili... I need to eat...
Að lokum ætla ég að skora á hana frænku mína að bjóða mér á hestbak við tækifæri :) Nota Bene ég veit ekkert hvernig þessar skepnur virka :) Veit samt hvað snýr fram og hvað aftur :)
Bless í bili... Lea
Engin ummæli:
Skrifa ummæli