þriðjudagur, maí 6

Mikill svefn...
Ég er búin að sofa og sofa... vakna svo inn á milli til að skila cocoa puffsinu sem ég píni ofan í mig ....
Fór í próf í gær... kannski gekk mér vel... kannski ekki... en mér gekk ekki illa. Það er alltaf gott :) Fór að sofa þegar ég var búin að horfa á Survivor í gær... já eða eftir að ég var búin að tjá mig við Magga (eða hann við mig) hvað þær eru miklar #$%%$& þær stöllur... ekki glöð....

Guðrún Birna ég ætla ekki að lofa að ég þekkji þig... ég er nefninlega ansi mikill auli á þetta allt saman sjálf... en það hefði verið gaman að hafa þig í biðröðinni... ég gelti á Röggu Gísla og Dóru Takefusa... strákarnir fyrir aftan okkur héldu að við værum hreint stórfurðulegar (á góðan hátt) og ég roðnaði þegar ég komst að því að útlendingarnir fyrir framan okkur voru bara fullt af Íslendingum að tala við einn útlending... en það var mest fyndið :) Ég horfði reyndar eftir þér þegar við rákumst á Tomma vin hans Gumma en nó gó... held nefninlega að það hefði verið bara gaman að hitta þig :)

Mikið gaman og mikið grín og heldur mikið full Prinsessa... svona allavega í endann.... sagði Birgittu hvað mér þætti nú svakalega vænt um hana... en geri það nú alveg edrú líka... sagði Elmari eitthvað.... man ekki alveg hvað.... og svo er kannski eitthvað sem ég ætla ekkert að vera að segja frá.. uhumm

Ég er komin með vinnu... held ég... náði ekki að tala við kallinn því ég var að gubba svo mikið... tala við hann betur á morgun :) og vonandi þá bara að byrja að vinna hinn daginn :) Ánægð með það... en langar samt alveg hryllilega heim á Höfn í sumar!!!

Get ekki meir... ætla að sofa meir..... over and out

Engin ummæli: