þriðjudagur, maí 6

Pirr pirr eins og Steinunn segir...
Ég er ekki glöð með það að þrátt fyrir að hafa margbeðið hér á síðunni um að einhver ákveði fyrir mig hvað ég á að kjósa hefur engin sagt orð!!! Ég er búin að taka allskonar kannanir og þær sýna að ég eigi að kjósa Samfylkinguna eða Frjálslynda flokkinn... er það málið???
Auðvitað fer ég ekki að kjósa Frjálslynda... það kemur bara ekki til greina.

Ég veit að Dísa myndi verða ánægð ef ég yrði "blátt áfram" og setti X við D hehe...
Pabbi gamli segir ekki orð um hvað hann ætlar að kjósa... en hann hefur svo sem aldrei gert það, en ég veit samt alveg hvað það er :)
Mamma kýs líka það sem pabbi kýs.... en gerir hún það í ár??? Ég veit að fyrir mörgum mörgum árum kaus hún Kvennalistann... allavega í eitt skipti... en hvernig veit ég þessa hluti... mamma segir að sama hvað ég kjósi... alltaf mæta á kjörstað... skila þá bara auðu.... en kommon, ég veit ekki einu sinni hvert ég á að fara til að kjósa :Þ
Ég er greinilega bara vitleysingapía...
Einu sinni kaus ég Sjálfstæðisflokkinn.... Rólegur Boggi minn... þetta var í bæjarstjórnarkosningum í fyrra og ég setti X-ið óvart á vitlausan stað... nennti ekki að breyta... Enda skipti það held ég litlu hvort X-ið væri við B eða D.
En skiptir það máli núna... ef ég kýs Dóra er ég þá ekki bara að kjósa Dabba... úff..
Mér finnst allavega fáránlegt þegar einhverjar kellingar segjast ætla að kjósa Ingibjörgu af því að hún er kona.. kommon!!!

Sumir halda greinilega að það sé verið að kjósa bestu auglýsinguna... þá hefur B vinninginn... allavega ekki D-menn... ég hef allavega bara séð einhverja þúsundkalla/hænu auglýsingu sem er alveg hundleiðinleg...
Ég vil sjá alla formenn flokkana biðja eins auðmjúklega og Dóra.... segið mér afhverju ég á að kjósa ykkur... tell me NOW :Þ

Engin ummæli: