föstudagur, júní 20

Ég fékk bréf frá einum lesanda þessa bloggs á Hotmailið mitt. Ég var meira en lítið undrandi yfir innihaldi þess og hef ákveðið að svara þessu bréfi opinberlega hér á blogginu!

Opið bréf til Nonna
Blessaður Nonni og takk fyrir bréfið :)
Ég vil ekki sjá það að þú eða aðrir biðji afsökunar á því sem þið skrifið í Kommentasystemið, það er einmitt þarna til þess að lesandinn geti sagt sína skoðun og hvaða tilfinningu hann hefur fyrir skrifum mínum. Kommentið þitt var fallegt, hreinskilið og hitti beint í mark, enda skrifaði ég EFALAUST í næsta bloggi á eftir. Þú þekkjir mig kannski lítið en sást þarna alveg í gegnum mig, sem er kannski bara allt í lagi.
Hvað það varðar að ég sé að hugsa um að hætta bloggi þá er það ekki vegna þessa komments. Því var tekið eins og því var ætlað, sem klappi á öxlina :) Ein ástæðan fyrir þessum hugleiðingum um að hætta er sú að ég er að upplifa tilfinningar sem ég á bágt með að viðurkenna fyrir sjálfri mér, hvað þá hverjum þeim sem gæti verið að lesa :)
Það getur stundum verið svoldið erfitt. Þegar ég byrjaði á þessu bloggi þá vissi nánast enginn hver Lea Prinsessa var.
Ég gat skrifað mínar hugrenningar óhikað. Ég á erfiðara með það núna og er það einungis mér að kenna.
Auðvitað á ég bara að sleppa takinu og láta vaða :) Hin ástæðan er bein afleiðing af þeirri fyrri, mér finnst ég hafa fest mig í því formi að upptelja það sem ég geri yfir daginn sem er allt í lagi stundum. En hin blákalda staðreynd er sú að ég lifi ekkert voðalega spennandi lífi :)
Þetta blogg hafði fyrirsögnina "Lea er að hugsa" og því hef ég týnt einhversstaðar á leiðinni og finnst mér bloggið mitt hreinlega leiðinlegt fyrir vikið. Ef mér finnst það leiðinlegt þá hef ég nú litla trú á að öðrum finnist það áhugavert.

Ég þakka hugulsemina í minn garð og ég skal fullvissa þig um að mér líður ekkert það illa. Ég skrifa yfirleitt þegar mér líður illa og birti það stundum á blogginu. Ég hef minni þörf til að tjá mig þegar mér líður vel :) Allavega opinberlega :)

Hafðu það gott Nonni minn og haltu áfram að skrifa, ég hef hrikalega gaman af blogginu þínu :) Og mundu að þó við höfum ekki hisst oft þá þekkjumst við nú ágætlega :) Bæði í gegnum visst freknufés (sem hefur talað alveg heilmikið um þig) og gegnum bloggin okkar. Þar kannski birtir maður sitt insta þegar vel liggur á. Það gerir maður ekki úti í hinum grimma en oft svo skemmtilega heimi :)

Láttu þér líða vel og eigðu góðan dag :)
Kveðja Lea / Kristbjörg

Engin ummæli: