Búið að vera geggjað veður þessa vikuna. Alger steik þrið. mið. og fim.
Við Hafrún fórum 2 síðustu kvöld að veiða með ágætm árangri. Ég er orðin hrikalega fær í köstunum og hef rosalega gaman af þessu. Þvílík ró sem fylgir því að sitja í miðri náttúrunni og horfa á flotholt sem haggast kannski ekki nema við og við.
Sólarlagið bæði kvöld hefur gert mig dolfallna svo ekki sé meira sagt. Mjöðmin reyndar að drepa mig og fór ég meira segja að grenja í gær ég fann svo til.
Annars er lífið afar ljúft og maður kvartar ekki í svona bongóblíðu, liggur bara og leyfir henni að baka sig í rólegheitunum við hvert tækifæri.
Mér finnst alltaf leiðinlegt að vita til þess að einhverjum líði illa.
Nú veit ég um 2 manneskjur sem hafa það ekki sem allra best.
You gotta take the bad with the good. Það verður ekki hjá því komist. Lífið er ekki endalaus hamingja. Enda væri hún ekki svona sérstök ef svo væri. Við eigum að njóta þess fyrst og fremst að eignast vini. Ekki setja kvaðir á kynnin. Come what may. Lífið er snúin kúnst sem við lærum ekki fyrr en við lítum til baka í enda ferðar :) En sjáið hvað það er dýrlegt. sérstakleg ófullkomleikinn í okkur sjálfum. Það gerir okkur einstök og fullkomlega eins og við erum best :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli