Tölvan búin að vera í viðgerð svo lengi að ég er komin yfir mestu fráhvarfseinkennin. En þar sem tölvan var ekki til að taka við einhverju rugli þá lenti stílabókin bara illa í því
Þriðjudagur
Í dag er góður dagur
Sólin sleikti og steikti kroppinn á mér.
Ég sem átti í erfiðleikum með að opna glyrnurnar í morgun, en oh boy hvað það var þess virði.
Í vinnunni sátum við ásamt flestu vistfólkinu úti í garði og leyfðum geislum sólarinnar að kyssa okkur blíðlega á vangann.
Eftir vinnu þá dreif ég mig heim, í bikini, greip sólarolíunaog flýtti mér bak við hús þar sem ég get striplast að vild. Mamma var að maka steikingarolíunni á bakið á mér þegar síminn hringdi. Ég hljóp inn og svaraði "Halló". "Halló" sagði óþekkta röddin á hinum endanum " Kristbjörg, er hún þarna?" "Þetta er hún" svara ég yfirmáta kurteislega. "Hæ elskan" er hrópað af kátínu í eyrað á mér og mér hálfbregður. Svo tekur við hrossahlátur á hinum enda línunnar og ég þá fyrst átta ég mig á hver hringdi úr leyndu númeri.
Í dag er YNDISLEGUR dagur því ég heyrði röddina í Gittu minni í fyrsta skipti í 1 og hálfan mánuð. Yndislega, fallega að innan sem utan, prinsessan mín.
California er víst bara California, en OMG hvað það væri gaman ef við værum þarna báðar :)
Eða bara einhversstaðar saman. Það hefur ekki klikkað hingað til :**
Humarhelgin kom og fór eins og allar hinar. Það er kannski bara ágætt því hver þolir slík hátíðahöld (djamm og djús) til lengdar. Við fórum auðvitað á kostum sem DJÖFLADÍSIRNAR og höfðum vart undan myndatökum á föstudaginn. Ég auglýsi hér með eftir einhverjum af þeim til opnberrar birtingar. Einnig komu þó nokkrir upp að mér og báðu mig um að hætta ekki að blogga. Suma þekkti ég, en aðra nánast ekki. Var ekki alltaf viss hvort ég ætti að vera móðguð eða upp með mér. Er þá ekki bara best að vera bæði? :)
Eftir ball og fyrirutaneftirballhangsherlegheit á fös. (öllu heldur laugardagsmorgni) þá fór ég, eins og árin á undan í hjólreiðatúr undir morguninn. Með heimatilbúnu rækjusamlokuna í annarri og bjór í hinni var það misauðvelt en auðvitað bara gaman af því. Datt bara einu sinni af baki og slapp algerlega við alvarleg meiðsli. Fór allavega betur en í fyrra þegar skottið mitt festist í teinunum :)
Laugardagur reis skömmu áður en ég sofnaði á neðri hæðinni og snéri ég til meðvitundar rétt eftir hádegi "þynnkfree" og skellti mér beint í gleðina. glaumur og gaman var á bryggjunni og allskonar dagskrá í boði. Um kvöldið var svo haldið í partý, afmæli, partý og svo á ball. Troðið var í íþróttahúsinu og hrikalegt stuð. Undir verndarvæng okkar var nýfermdur peyji og var hann gagntekinn af dýrðinni. Held þó að hann hafi verið hálf skelkaður þegar hljómsveitin tók Rammstein og ég og systir hann fórum í hanaslag eða skölluðum hvor aðra í loftinu :)
Ballið búið, partý úti um allt en enginn fór í tjörnin þetta árið. Ætli maður sé ekki að þroskast aðeins hehe
Helgin búin og djammþynnkan eftir. Engin höfuðverkur og hvergi bólaði á uppköstum en þvílík andleg og líkamleg þreyta.
Ég kláraði báða orkugeymana og þá tekur smá tíma að hlaða.
Svo komu kjaftasögurnar!!
Diablos gellurnar voru útúr spíttaðar alla helgina RANGT!!! við vorum kátar og aktívar en þurftum að hafa fyrir því. Einu vímuefnin sem fóru í okkur var Diablos bjór og löglegar sígarettur beint úr sjoppu.
Þó við séum "Djöflar" (Diablos) þá erum við ekki í slagtogi með fíkniefnadjöflinum! Þvert á móti einmitt!
Sjálfsagt hafa sögurnar komið til vegna þess að þegar við vorum í sakleysi okkar (og hrikalegum hávaða sem fylgjir 8 stelpum á djamminu) að skipta um boli í skúr félaga okkar þá þá kom lögreglan og kyrrsetti okkur. Reyndar voru þetta aðkomulöggur enda hlógu "heimalöggurnar" þegar þær sáu hver fórnarlömb þessarar rassíu voru. En við þurftum að bíða eftir leitarhundi og gladdi það okkur ekki þar sem við vorum á hraðferð á ball. Hundurinn kom og leit ekki einu sinni við okkur því þarna var auðvitað ekkert að finna. við héldum því á ball og grínuðumst með það allt kvöldið að við værum dópsalar úr Reykjavík hehe
Eitthvað þurfa kjaftakellingarnar víst að smjatta á!
Allavega, nú hófst andleg hvíld og uppbygging og fór hún aðalega fram uppi í sumarbústað í góðum félagsskap.
Á laugardaginn snéri ég heim endurnærð og skellti mér í videógláp.
Í dag er FRÁBÆR dagur.
Við Hafrún fórum suður á Mýrar að veiða. Það var æðislegt í frábæru veðri. Ég veiddi bara einn titt en það var róin sem fylgdi mér heim sem skipti máli :) Við Hornfirðingar erum heppin að hafa þennan magnaða fjallahring og glæsilega útsýni... Við sátum dolfallnar og horfðum á sólarlagið :)
Meira hef ég eiginlega ekki að segja.
Mér líður rosalega vel. Laus við allt karlastand.
Ég er andlega sterk, ánægð með með sjálfa mig og lífið í heild sinni, Gerist það betra?
Mig langar að skilja eftir nokkur skilaboð.
Dísa...elsku vina, Ég samhryggjist þér og þínum og er þér innanhandar hvenær sem er.
Birgitta... Miss you. Takk fyrir að hringja. Það var gott að heyra röddina þína. Fylgdu eigin sannfæringu og vertu sjálfri þér trú.
Jónas... ég bíð enn. Ég veit að þú getur þetta.
Íris... þú verður nú að setja upp gestabók svo ég geti kvittað hehe :)
Villa.. ERT EKKI AÐ KOMA?? *Búhú*
Kalli bro... til hamingju með afmælið á mánudaginn elsku dúllan mín:** Nú fer ég að senda þig í brennivínsbúðina ;)
Boggi... fyrirgefðu að þessi færsla er bæði löng og langdregin... þú verður bara að taka þetta í hollum :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli