Ég nestispoka á baki ber....
Jæja þá er komið að ég fari í 22 ferðalög :) Neskaupsstaður er fyrirheitna landið og djöfull verður þetta gaman. Sorry GB Við hittums víst ekki þessa helgina.... eða hvað?? Fregnir herma að hópur töffara ætli að fara norðurleiðina heim og vera á Akureyris á sunnudeginum... kannski ég hjúfri mér upp að einum þeirra og laumi mér hehe :)
Mikill verslunarleiðangur er framundan því þetta verður sko ALVÖRU útilega... ekki e-ð sjoppuhamborgarastand út í það endalausa :)
Kassi af bjór og annar af magic komnir í hús... smokkarnir á sínum stað og tannburstinn... gellan bara ready ;)
Akureyringar og nærsveitungar... ef ég læt ekki sjá mig norðan heiða (eða verð svo crazy að ég gleymi að láta heyra í mér) þá kem ég 21.ágúst í fæðingarbæinn og hugsa að ég verði alveg í viku.. svo þiðð þurfið ekkert að örvænta ;)
En nobbarar þurfa hinsvegar að fara að vara sig... og riddarar þjóðvegarins líka (rollurnar). Kannski við Haffa rænum eins og einni belju... eða bindum rollu aftan í bílinn....annað eins hefur gerst... en segji ekki hvort það hafi verið í kollinum eða raunheimum :) Mikið hlegið allavega.... ég hló frá Hellu að Klaustri.... mmmm já það var skemmtileg ferð :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli