Ég þoli ekki að verða húkt á einhverju..... ég verð líka húkt á fáránlegustu hlutum....
Nú er ég algerlega húkt á Minesweeper.... þið vitið öll hvað það er, er það ekki....
Þetta er leikur í tölvunni ykkar.... ég er orðin hrikalega góð í þessu meira að segja!
Ég er eiginlega komin með ógeð en er samt húkt... mig dreymdi leikinn meira að segja í nótt...
Í gærkveldi sat ég hjá Unu og við stelpurnar vorum að uppljóstra upp neyðarlegum atvikum :) og hlæja að öðrum ekki svo leyndum atvikum... og mar er svo fokked að maður skammast sín ekki fyrir þetta einu sinni... enda algert prump! (fyrir þá sem skilja hvað ég er að fara)
Nú er allt að skella á... ég búin að skúra húsið.... Gústa að koma ú dag með það sem þarf til að fullgera búningana.... svo er morgundagurinn.... kíkt út í smá öl og svo föstudagur... ég er eins og lítill krakki í sykursjokki...
Í gærkvöldi þá lagðist ég fyrir og fór að hugsa og fattaði að kollurinn er alvg tómur af einhverjum djúpstæðum pælingum... sem er mjög óvenjulegt... ég er froðuhaus þessa dagana og mér finnst það bara ágætt. Líður öðru fólki s.s. svona...
Þið vitið.. þetta fólk sem líður aldrei illa og allt það... u know the type :)
En auðvitað er ég ekki eina manneskjan í heiminum sem hugsar OF MIKIÐ! Væri samt alveg til í að vera froðuhaus eða frostpinni stundum :) Geta bara gengið í burtu og líta aldrei til baka.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli